Léttur pastaréttur í brauði

Hráefni
» stórt kúlubrauð
» 1 pakki rigatoni pasta frá De Cecco
» ólífuolía
» 3 msk. pestó frá Sacla
» 1/2 krukka grillaðar paprikur frá Sacla
» 4 stk. sólþurrkaðir tómatar
» 1/2 krukka fetaostur í kryddlegi
» 2 msk. furuhnetur, létt ristaðar
» salt og pipar

Aðferð

Sjóðið pastað, veltið upp úr smá ólífuolíu og kælið síðan. Blandið pestói vel saman við pastað. Skerið niður paprikur og sólþurrkaða tómata, setjið saman við ásamt fetaosti og léttristuðum furuhnetum og kryddið með salti og pipar. Skerið lok ofan af brauðinu, holið það að innan og setjið pastablönduna í staðinn. Rétturinn er bæði góður kaldur og heitur.

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar