Einfaldur skinkuréttur

Hráefni
» skorpulaust franskbrauð
» dijon hunangssinnep
» 1 stk. piparostur
» 1 stk. Dala-Yrja
» 2 dl rjómi eða matreiðslurjómi 15%
» 150 g skinka
» 1 lítil dós grænn aspas
» aromat krydd og svartur pipar
Athugið að hráefnismagn fer eftir stærð mótsins sem rétturinn er bakaður í. Smyrjið franskbrauðið með hunangssinnepinu. Gætið þess að nota ekki of mikið. Látið brauðið fylla vel út í botninn á smurðu eldföstu móti. Skerið piparostinn og Dala-Yrjuna niður og setjið yfir brauðið. Osturinn þarf ekki að þekja brauðið. Hellið rjómanum yfir þannig að brauðið rétt blotni. Meiri rjómi þýðir blautari réttur. Saxið niður skinkuna og aspasinn og dreifið yfir. Kryddið lítillega, til dæmis með aromati og svörtum pipar. Gott er að setja rifinn ost yfir að lokum. Bakið við 190°C í um 20 mín. eða þar til rétturinn hefur fengið fallegan lit.

Aðferð

Athugið að hráefnismagn fer eftir stærð mótsins sem rétturinn er bakaður í.

Smyrjið franskbrauðið með hunangssinnepinu. Gætið þess að nota ekki of mikið. Látið brauðið fylla vel út í botninn á smurðu eldföstu móti. Skerið piparostinn og Dala-Yrjuna niður og setjið yfir brauðið. Osturinn þarf ekki að þekja brauðið. Hellið rjómanum yfir þannig að brauðið rétt blotni. Meiri rjómi þýðir blautari réttur.

Saxið niður skinkuna og aspasinn og dreifið yfir. Kryddið lítillega, til dæmis með aromati og svörtum pipar. Gott er að setja rifinn ost yfir að lokum.

Bakið við 190°C í um 20 mín. eða þar til rétturinn hefur fengið fallegan lit.

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar