Hagkaup
|
mbl
|
7. nóvember
Gráðaostsfyllt smjördeigsrúlla með skinku
- Hráefni
- » 300 g smjördeig
- » 1 stk. egg
- » 6 sneiðar skinka
- » 6 sneiðar „Gamli Óli“ eða Danbo ostur
- » um 100 g gráðaostur
- » jöklasalat (iceberg)
- » 1 stk. eggjarauða
- » paprikuduft
Aðferð
Fletjið út smjördeigið og penslið með þeyttu eggi. Leggið skinku- og ostsneiðarnar yfir. Skerið gráðaostinn niður í strimla og leggið yfir á víð og dreif. Þekið síðan með salati og rúllið þétt upp, látið sárið snúa niður, penslið með eggjarauðunni og kryddið með paprikudufti. Bakið við 190°C í um 20 mín. eða þar til góður litur er kominn á smjördeigsrúlluna. Látið mesta hitann rjúka úr smjördeigsrúllunni áður en hún er skorin í sneiðar.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/871/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira









