Hagkaup
|
mbl
|
7. nóvember
Ristaðar brauðrækjur
- Hráefni
- » 4 sneiðar franskbrauð
- » 100 g smjör
- » 70 g parmesanostur
- » 1 stk. laukur
- » 2-3 stk. hvítlauksgeirar
- » 50 g ananaskurl
- » 500 g rækjur
- » 1 dl matreiðslurjómi 15%
Aðferð
Ristið brauðið eða þurrkið í ofni og kælið síðan. Rífið brauðið niður í smáa bita. Bræðið smjörið og rífið parmesanostinn fínt. Fínsaxið laukinn og pressið hvítlaukinn. Blandið þessu vel saman, bætið ananaskurli og rækjum saman við. Setjið í smurt eldfast form og hellið rjómanum yfir. Bakið við 190°C í um 25 mín. og berið síðan fram með ristuðu brauði og góðri sósu, til dæmis hvítlauks- eða gráðaostssósu.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/874/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










