Skinku- og sveppaveisla

Hráefni
» brauð að eigin vali
» 1/2 haus spergilkál (brokkolí)
» 250 g dönsk skinka úr dós
» 100 g sveppir
» 15 g smjör
» 1 stk. hvítlauksgeiri
» salt
» „season all“ krydd
» 1 peli rjómi
» 50 g rjómaostur

Aðferð

Skerið ofan af brauðinu og holið það að innan, skerið síðan spergilkálið af stilkunum og sjóðið í um 10 mín. Á meðan spergilkálið sýður skerið þið skinkuna og sveppina í teninga. Steikið sveppina upp úr smjöri með hvítlauknum og kryddið með salti og „season all“ kryddi. Setjið skinkuna saman við og steikið lítillega með í lokin. Bætið rjómaostinum og rjómanum út í og sjóðið niður þar til vökvinn hefur minnkað um helming. Takið spergilkálið upp úr pottinum og setjið strax saman við. Gott er að hafa smávegis af soðinu með. Setjið fyllinguna í brauðið, bakið við 200°C í um 25 mín. og berið fram heitt.

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar