Hagkaup
|
mbl
|
7. nóvember
Ostabúðingur
- Hráefni
- » 200 g hvítt, skorpulaust brauð
- » 120 g sterkur ostur, rifinn
- » 170 ml nýmjólk
- » 130 g smjör
- » 2 stk. egg, aðskilin
- » 1 msk. steinselja
- » salt og pipar
- » rifsberjahlaup
Aðferð
Rífið brauðið niður og blandið því saman við rifna ostinn. Bræðið smjörið og setjið saman við ásamt eggjarauðum og mjólk. Blandið þessu vel saman og kryddið með steinselju, salti og pipar. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim varlega saman við brauðblönduna. Setjið þetta í smurt eldfast mót og bakið við 190°C í um 20 mín., eða þar til góður litur er kominn á réttinn og hann er farinn að losna frá börmunum. Gott er að bera rifsberjahlaup og ristað brauð fram með ostabúðingnum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/876/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










