Hagkaup
|
mbl
|
7. nóvember
Brauðréttur með fetaosti og svörtum ólífum
- Hráefni
- » 6 stk. brauðsneiðar, án skorpu
- » 1/2 stk. rauð paprika
- » 1/2 stk. græn paprika
- » 1 dós grænn aspas
- » 10–15 stk. svartar ólífur, eða eftir smekk
- » 1/2 krukka fetaostur í kryddlegi
- » 100 g brieostur, til dæmis með gráðaostsrönd
- » 1 dl rjómi
- » 1 dl matreiðslurjómi 15%
- » 60 g feitur ostur, rifinn
- » þurrkað timjan og basilíka
Aðferð
Rífið brauðið niður og setjið í smurt eldfast form. Skerið niður paprikuna, aspasinn og ólífurnar og setjið yfir brauðið. Setjið fetaostinn yfir og látið örlítið af kryddleginum fylgja með. Skerið brieostinn niður og setjið yfir.Blandið saman rjóma og matreiðslurjóma og hellið yfir brauðréttinn. Að lokum er rifnum osti dreift yfir og kryddað með timjan og basilíku. Bakið brauðréttinn við 200°C í um 2530 mín. eða þar til osturinn er farinn að taka fallegan lit.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/878/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










