Hagkaup
|
mbl
|
7. nóvember
Kjúklingabaka
- Hráefni
- » 500 g smjördeig
- » 300 g sveppir
- » salt og pipar
- » 1 stk. rauð paprika
- » 300 g kjúklingur, steiktur
- » 200 g goudaostur
- » 50 g fetaostur í kryddlegi
- » 1 dós sýrður rjómi
Aðferð
Fletjið smjördeigið út og setjið í eldfast form. Sneiðið sveppina niður og steikið þá upp úr smjöri á pönnu. Kryddið með salti og pipar. Skerið paprikuna niður í teninga, bætið henni út á pönnuna og hitið með í restina. Rífið steiktan kjúkling niður og blandið honum saman við ásamt goudaosti og fetaosti. Kælið áður en sýrða rjómanum er hrært saman við. Hellið blöndunni yfir smjördeigið í forminu, bakið við 200°C í um 25 mín.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/880/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










