Hagkaup
|
mbl
|
7. nóvember
Rúllutertubrauð með beikoni
- Hráefni
- » 1 stk. rúllutertubrauð
- » 1 stk. beikon smurostur
- » 2 msk. rjómi
- » 4 msk. majónes
- » 250 g beikon skinka
- » 4-6 lúxus beikonsneiðar
- » 1/2 dós grænn aspas
- » 2 stk. eggjahvítur
- » 1 msk. majónes
Aðferð
Steikið beikonið og þerrið. Setjið pott á eldavélarhellu sem stillt er á lágan hita. Setjið smurostinn með smá aspassafa í pottinn og hrærið í þar til osturinn er orðinn mjúkur. Bætið rjómanum og majónesinu út í og blandið vel saman. Skerið beikonið og skinkuna í bita og blandið saman við. Hellið blöndunni yfir rúllutertubrauðið og rúllið upp. Stífþeytið eggjahvíturnar, blandið einni msk. af majónesi mjög varlega saman við og smyrjið utan á brauðtertuna. Bakið við 200°C í um 20 mín. eða þar til eggjahvítuhjúpurinn hefur fengið góðan lit.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/881/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










