Skinka og aspas

Hráefni
» kúlubrauð, gróft
» 1 lítil dós grænn aspas
» 1 lítill laukur
» 150-200 g skinka
» 3 stk. egg, harðsoðin
» 100 g sýrður rjómi
» 100 g majónes
» sveppasúpa frá Campbell's
» salt og pipar

Aðferð

Skerið ofan af brauðinu, holið það að innan og takið 1/3 hluta brauðsins frá og geymið. Látið leka vel að aspasnum og saxið laukinn smátt niður. Skerið eggin niður í litla bita. Blandið saman sýrðum rjóma, majónesi og sveppasúpunni. Hrærið vel saman og kryddið með salti og pipar. Bætið öðru sem í réttinn á að fara saman við ásamt brauðinu sem þið tókuð frá og setjið ofan í kúlubrauðið. Hitið í ofni við 200°C í um 35 mín. og berið fram heitt.

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar