Hagkaup
|
mbl
|
7. nóvember
Sveppabrauðfylling
- Hráefni
- » 300 g sveppir
- » 50 g smjör
- » 2 stk. skalottlaukar
- » dill
- » salt og pipar
- » 1 tsk. sojasósa
- » 2 dl rjómi
- » 4 sneiðar brauðtertubrauð
- » 50 g smjör
- » 4 msk. olía
- » 5 stk. hvítlauksgeirar
- » oregano
- » mozzarellaostur
Aðferð
Sneiðið sveppina þunnt og steikið, upp úr 50 g af smjöri, ásamt skalottlaukunum. Kryddið með dilli, salti og pipar. Þegar sveppirnir eru vel steiktir er sojasósan sett saman við ásamt rjómanum. Látið suðuna koma upp og sjóðið í u.þ.b. 1 mín. Bræðið önnur 50 g af smjöri og blandið olíunni saman við. Pressið hvítlaukinn og setjið út í. Smyrjið brauðið með þessu og stráið oregano yfir. Setjið brauðið undir grill og ristið lítillega, setjið síðan í smurt eldfast mót og hellið sveppablöndunni yfir. Best er að hafa tvö lög af hvoru, brauði og sveppafyllingu. Stráið mozzarellaostinum yfir og setjið undir grill þar til osturinn hefur brúnast.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/884/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










