Hagkaup
|
mbl
|
7. nóvember
Heitt rækju- og hrísgrjónabrauð
- Hráefni
- » 500 g soðin hrísgrjón
- » 2 tsk. karrí
- » 1/2 tsk. paprikuduft
- » 100 g majónes
- » 2 1/2 dl léttþeyttur rjómi
- » 2 stk. eggjarauður
- » 300 g rækjur
- » 250 g grænn aspas
- » 1/2 stk. rauð paprika
- » 2 stk. rúllutertubrauð
- » 2 stk. eggjahvítur
- » 100 g goudaostur, rifinn
Aðferð
Sjóðið hrísgrjónin, kryddið með karríi og paprikudufti og kælið örlítið. Blandið saman rjóma, majónesi og eggjarauðum og hrærið saman við volg hrísgrjónin. Skerið papriku og aspas niður og blandið saman við hrísgrjónin ásamt rækjunum.Leggið annað rúllutertubrauðið í botninn á smurðu eldföstu fati og hellið smá aspassafa yfir, setjið alla hrísgrjónablönduna yfir, leggið svo hitt brauðið ofan á og bleytið með smá aspassafa. Þeytið eggjahvíturnar, smyrjið þeim yfir brauðið og stráið rifna ostinum yfir. Bakið við 200°C í um 25 mín., eða þar til osturinn er orðinn gullinbrúnn.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/889/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira










