Hagkaup
|
mbl
|
7. nóvember
Heitt skinkusalat á pönnu
- Hráefni
- » 1 stk. hvítur laukur
- » 100 g sveppir
- » 1/2 stk. rauð paprika
- » 2 dl matreiðslurjómi 15%
- » 350 g rjómaostur
- » 130 g skinka
- » 100 g parmesanostur
- » steinselja
- » salt og pipar
Aðferð
Saxið laukinn smátt og steikið upp úr smjöri á pönnu. Brytjið sveppina einnig smátt og steikið með, kryddið með salti og pipar, saxið paprikuna smátt og setjið saman við. Hrærið saman rjómaosti og matreiðslurjóma og blandið saman við grænmetið á pönnunni. Látið rjómaostinn leysast vel upp og setjið saxaða skinkubita og rifinn parmesanost út í. Að lokum er steinseljunni stráð yfir. Haldið réttinum heitum á pönnunni eða í ofni og berið svo fram með ristuðu brauði.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/890/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira









