Heitt sveppaostabrauð

Hráefni
» baguette brauð
» 1 stk. laukur
» 300 g sveppir
» 2 stk. hvítlauksgeirar
» salt og pipar
» um 3 msk. hvítvín
» um 150 g goudaostur, rifinn

Aðferð

Steikið niðurskorinn lauk upp úr smjöri á pönnu en látið hann ekki brúnast. Bætið sveppum og hvítlauk á pönnuna og steikið með. Kryddið með salti og pipar. Setjið hvítvínið saman við og sjóðið niður. Skerið baguette brauðið eftir endilöngu, án þess að skera í gegn. Setjið sveppablönduna ofan í og stráið goudaostinum yfir. Setjið brauðið undir glóð í ofni og brúnið ostinn. Brauðið má hvort sem er bera fram heitt eða kalt.

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar