Hagkaup
|
mbl
|
28. nóvember
Sveppatoppur
- Hráefni
- » snittubrauð
- » um 100 g brætt smjör
- » 1 stk. stór hvítlauksgeiri
- » 1/2 stk. laukur
- » 400 g sveppir
- » 1 msk. sherry (má sleppa)
- » 80 g sýrður rjómi
- » 2 tsk. maísmjöl eða hveiti
- » 1 tsk. steinselja
- » 1 tsk. basilíka
- » 35 g parmesanostur
Aðferð
Skerið brauðið niður og penslið með smjöri. Ristið við 200°C í um 5-10 mín.Steikið hvítlauk og lauk þar til laukurinn er mjúkur, skerið sveppina smátt, bætið þeim saman við laukinn og steikið með. Setjið sherry og sýrða rjómann saman við og hrærið svo maísmjöli eða hveiti saman við til að þykkja sósuna og hitið síðan lítillega. Takið af hitanum og blandið steinselju og basilíku saman við ásamt rifnum parmesanosti. Hrærið öllu vel saman og kælið, setjið svo um eina matskeið á hverja brauðsneið og berið fram kalt.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/926/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira










