Hagkaup
|
mbl
|
28. nóvember
Sveppa- og skinkutapenade
- Hráefni
- » baguette brauð
- » ólífuolía
- » 200 g sveppir
- » 1 stk. hvítlauksgeiri
- » 2 tsk. balsamedik
- » 2 msk. grænt pestó
- » um 100 g skinka í sneiðum
- »
- » skraut
- » parmesanostur
- » graslaukur
Aðferð
Skerið niður brauðið, penslið með olíu og létt ristið ef þið viljið. Saxið sveppina og hvítlaukinn og steikið saman á pönnu, hellið balsamedikinu yfir, takið af hitanum og hrærið pestó saman við. Setjið maukið á brauðið og væna sneið af skinku þar yfir. Skreytið með parmesanosti og smávegis af graslauk.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/929/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira










