Hagkaup
|
mbl
|
28. nóvember
Baguette brauð með paprikumauki
- Hráefni
- » baguette brauð
- » 1 krukka grilluð paprika frá Sacla
- » 2 msk. púðursykur
- » 1/2 dl + 2 msk. hvítvín
- » 21/2 msk. balsamedik
- » 2 msk. söxuð basilíka + það sem fer í skraut
Aðferð
Hellið innihaldinu úr paprikukrukkunni í sigti og látið leka vel af. Hitið olíu á pönnu, setjið paprikuna á pönnuna ásamt púðursykri og hrærið jafnt og þétt þar til sykurinn er uppleystur. Hellið hvítvíni og balsamediki á pönnuna og hitið áfram í um 10 mín. eða þangað til vínið er gufað upp. Kælið og setjið basilíkuna saman við. Skerið niður baguette brauðið og ristið í ofni þar til það er orðið ljósbrúnt. Setjið paprikublönduna ofan á brauðið og skreytið með basilíkulaufi. Maukið má útbúa með dags fyrirvara.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/934/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira










