Meistaramatur
|
mbl
|
3. júlí
Heilsteiktur kjúklingur á dós með sætum chili gljáa
Sæktu Flash-spilarann
til að spila myndskeiðið
- Hráefni
- » 1stk kjúklingur
- » 1 lítil coke dós
- » 1 stk chili
- » 1stk hvítlaukur
- » 50ml sweet chili sósa (sæt chili sósa)
- » 50ml (oyster sauce) ostrusósa
- » 20g púðursykur
- » 50ml coke
- » 1 rif saxaður hvítlaukur
- » salt og pipar
Fyrir 2 - 4
Það er mjög vinsælt erlendis að troða bjórdós upp í óæðri endann á kjúklingi og grilla á útigrilli,Því þá situr kjúklingurinn á hásæti sýnu og grillast jafnt og gufan úr dósinni gerir kjúklinginn að mjúku lostæti, en hér er skemmtileg fjölskylduvæn útgáfa
Aðferð
Blandið kryddleginum saman í poka setjið kjúklingin í ásamt ,söxuðum hvítlauk salti og pipar og púðursykrinum. Setjið chili og hvítlauksrif ofan í dósina og færið kjúklinginn á grillið og setjið kjúklinginn á coke hásætið eða upp í óæðri endann þar til hann situr þar rólegur.Grillið í ca 11/2 tíma eða þar til hann er eldaður til fulls (passið að innihaldið í dósinni er við suðu meðan á eldun stendur. Penslið reglulega yfir kjúklinginn með kryddleginum úr pokanum. Gott getur verið að krydda létt yfir með salti og pipar, ef mikil fita lekur niður á kolin er gott að setja álpappír undir kjúklinginn svo kvikni ekki í veislunni
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1000/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira





















