Meistaramatur
|
mbl
|
9. ágúst
Humarfyllt Nautalund með skemtilegum kryddum
- Hráefni
- » 800gr Nautalundir
- » 150gr humar
- » 1 msk sítrónusafi
- » 1 tsk hvítlauksmauk
- » 1 tsk basil
- » 1 tsk paprikuduft
- » 1 tsk creolakryddblanda(má nota hvaða blöndu sem manni dettur í hug)
- » 1 tsk chiliflögur
- » 1 tsk cumminduft
- » salt eftir smekk
Fyrir 5 - 7
Þessi er svona smá spariútgáfa af grillaðri nautalund vel kryddaðri sem er fyllt með mildum humri.Aðferð
Byrjið á því að skelhreinsa humarinn og setjið í skál, blandið saman við hvítlauksmaukinu,sítrónusafan ,basilinu og salti og pipar. Þá er nautalundinn sinuhreinsuð og gert gat eftir endilöngu með hnífi eða sleif , enn það má ekki vera alveg í miðjunni ef menn vilja nautið sitt ekki alveg steikt í gegn heldur vel útí hlið lundarinnar svo að humarinn eldast létt enn miðjan í kjötinu verði ennþá bleikt og fallegt. Síðan er öllu kryddinu blandað saman og nuddað vel utaná lundina og síðan grillað eftir smekk og saltað í lokin. Munið að láta kjötið hvíla í 7-10 mín áður enn það er skorið niður.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1011/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira





















