Grillað fiski og skelfisksspjót

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið
Hráefni
» 400 g skötuselur, roðflettur og beinhreinsaður
» 200 g humar ,skelfléttur og hreinsaður
» 200 g tígrisrækjur, skelfléttar og hreinsaðar
» 1 stk paprika
» 1 msk hvítlauksmauk
» 1/2 rauðlaukur
» 2 msk ólívuolía
» 1 tsk ferskt timian, saxað
» salt og pipar
» sítrónusafi
» 1 msk sesamfræ
» 1 msk soyasósa
» 1msk sæt chilisósa

Fyrir 4 - 6

Þetta er skemmtilegt grillspjót sem hægt er að breyta um fiskitegundir að vild, enn það er ekki gott að nota fiska einsog þorsk, ýsu eða karfa , þeir eiga það til að hrynja í sundur við grillun.

Aðferð

Skerið skötuselinn í bita og setjið í skál ásamt humrinum og rækjunum og blandið saman með hvítlauknum, timianinu,sítrónusafanum, olíunni,soyasósunni,chilisósunni,sesamfræunum og salti og pipar.Skerið paprikuna og laukinn niður í bita og síðan er öllu skipt á milli manna og þrætt uppá spjót sem er búið að láta liggja í vatni í 2 klst. Þá er spjótið grillað á mjög heitu grilli í ca 4 mín á hvorri hlið eða þar til eldað að eigin smekk.

Þessi uppskrift er notuð í Létteldaður lax með asíu ívafi

Meðlæti

Létteldaður lax með asíu ívafi

Hráefni
» 1stk beinlaust og roðflett laxaflak
» 100ml góð tilbúin sósa eins og teriaki eða sweet sojasósa má vera hvað sem er
» 2msk hrísgrjónaedik
» 2 stk fínt sneiddir vorlaukar
» smá graslaukur til skrauts
» ögn af chili
» ögn af ferskum engifer
» salt og pipar

Fyrir 4 | skoða myndskeið

Lax er ekki bara ódýr heldur líka hollur, góður og léttur í maga og passar því vel þegar fólk ætlar að lyfta sér upp

Aðferð

Laxinn er flakaður, beinhreinsaður og roðrifinn. Kryddlagður með því sem talið er upp, kryddaður með salti og pipar. Grillið nær eingöngu öðru megin á vel olíuborinni grillgrind, framreiddur aðeins bleikur (því þessi er ættaður frá Japan þar sem sushi menning ræður ríkjum).

Grillað grænmetis og ávaxta salsa

None
9.8.2007 Litríkt, ferskt og gott með öllum grillmat, má einnig nota hvaða annað grænmeti sem manni langar ef eitthvað í uppskriftinni er ekki til. Meira »

Mangó- og sætkartöflusalsa

28.3.2007 Mangósalsa er mjög ferskt, en hægt er að skipta út mangó fyrir aðra ávexti eða grænmeti.  Meira »

Lambastrimlar í pudina-tikkasósu með couscous og tortillakökum

None
7.3.2007 Með því að skera afganginn af lambakjötinu í strimla, hræra saman við það bragðmikilli sósu og vefja í tortillaköku með með couscous og grænmeti er hægt að búa til ævintýralegan hollan mat á einfaldan hátt. Meira »

Heilsteiktur kjúklingur á dós með sætum chili gljáa

None
3.7.2007 Það er mjög vinsælt erlendis að troða bjórdós upp í óæðri endann á kjúklingi og grilla á útigrilli, Því þá situr kjúklingurinn á hásæti sýnu og grillast jafnt og gufan úr dósinni gerir kjúklinginn að mjúku lostæti, en hér er skemmtileg fjölskylduvæn útgáfa Meira »

Smálúða með fennelsalati og hægsoðnu eggi að hætti Sigga Gísla

None
12.6.2007 Smálúða er einn besti fiskur okkar Íslendinga og hér er hann matreiddur á skemmtilegan hátt  Meira »

Sítrónu kryddað kartöflumauk:

None
2.5.2007 Kartöflumauk úr ekta kartöflum er erfitt að toppa með tilbúinni kartöflumús úr poka, en hér er auðveld og góð lausn sem passar með flestum mat Meira »

Sashimiplatti

None
14.2.2008 Sashimi er þunnt skorinn fiskur og borðaður með soyasósu ,pikkluðu engiferi og wasabi. Best er að hafa alveg splunkunýjan fisk þar sem fiskurinn er borðaður hrár, einnig er hægt að vera með skelfisk eins og rækjur, humar, hörpuskel svo eitthvað sé nefnt. Meira »

Parmaskinkuvafinn humar með pestó

None
12.12.2007 Skemmtilegur pinnamatur á undan máltíð eða í standandi pinnapartý.  Meira »

Ris a la mande - jólabúðingurinn góði

None
18.12.2007 Sumir tala um að það séu ekki jólin nema Ris a la mande sé á jólaborðum og hér er auðveld uppskrift frá Matreiðslumanni ársins 2007, Þráni Frey Vigfússyni. Meira »

Vanillubúðingur með sýrðum rjóma

None
24.9.2007 Í þennan einfalda eftirrétt væri tilvalið að nota haustuppskeruna, nýtínd íslensk bláber eða krækiber – en nú er berjatíminn liðinn og erlend ber henta einnig vel. Einnig má nota frosin ber en þá þarf að sía af þeim safann sem rennur úr þeim er þau þiðna Meira »

Chillisambal

None
19.6.2007 Sterk og góð chili sulta að hætti Sjávarkjallarans  Meira »

Köld sinnepssósa

None
9.7.2007 Þessi sósa er öðruvísi því sýrðum rjóma er breytt í ferð um heiminn með sinnepsdufti og hrísgrjónaediki í aðalhlutverki.  Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar