Meistaramatur
|
mbl
|
22. ágúst
Hrísgrjónafylltur tómatur
- Hráefni
- » 4 stk Tómatar
- » 1 msk ólívumauk (tilbúið í krukku)
- » 1 msk rjómaostur
- » 3 dl soðin hrísgrjón
- » 1 msk fersk steinselja, söxuð
- » 1/2 tsk hvítlauksmauk
- » salt og pipar
- » 2 msk soyasósa
- » 1 tsk karrýduft
Fyrir 4
Meiriháttar gott meðlæti með öllum fisk, og sniðugt fyrir þá sem vilja vera búnir að undirbúa vel fyrir tímann.Aðferð
Skerið tómatana í tvennt og skafið innihaldið úr og saxið létt yfir það og setjið í skál ásamt hrísgrjónunum, ólívumaukinu, rjómaostinum,steinseljunni, soyasósunni, karrýinu og hvítlauknum blandið vel saman og smakkið til með salti og pipar.Setjið hrísgrjónablönduna síðan í tómathelmingana og setjið síðan tómatinn aftur saman vefjið inní álpappír og síðan skellt á grillið í ca.15 mínútur eða þar til heitur í miðjunni.Þessi uppskrift er notuð í Fylltar kartöflur með beikoni
Meðlæti
Fylltar kartöflur með beikoni
- Hráefni
- » 4stk bökunarkartöflur (foreldaðar)
- » 100g Beikon (forsteikt stökt)
- » 1 rif hvítlaukur í olíu
- » 1 búnt söxuð steinselja
- » salt og pipar
- » ögn saxaður chili
Fyrir 4 | skoða myndskeið
Bakaðar kartöflur er hægt að breyta á auðveldan hátt í grillaðar bragð bomburAðferð
Takið bakaða kartöflu og takið innan úr henni með skeið, kryddið innihaldið með stökku beikoni, hvítlauksmauki, saxaðri steinselju, salti og pipar, líka er hægt að auka kraftinn með smá af söxuðum chili eða láta hugmyndaflugið ráða ferðinni.
Vefjið saman í álppapír, hýðið fyllt með kryddaða kartöflumaukinu og þá er kartaflan klár til upphitunar á grilli.
Borið fram með sýrðum rjóma
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1019/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira





















