Meistaramatur
|
mbl
|
21. ágúst
Agúrku raita
- Hráefni
- » 1 stk Agúrka
- » 1 dolla jógúrt hreinn
- » 2 msk skyr
- » 1 tsk hvítlauksmauk
- » 1/2 tsk cumminduft
- » 1-2stk vorlaukur
- » salt og pipar
- » 1/2 tsk engifer
- » gott líka að saxa smá ferska myntu
Fyrir 4
Agúrku "Raita" er mitt á milli að vera sósa og meðlæti eða bara bæðiAðferð
Rífið agúrkuna gróft niður í rifjárni, saltið hana og látið standa í 10 mín og þá fer slatti af vökvanum úr (má sleppa) þá er jógúrtið ,skyrininu,engiferinu,vorlauknum, hvítlauknum og cummininu blandað saman í skál ,gúrkunni blandað saman við og smakkað til með salti og pipar ásamt einnig er gott að nota smá myntu.Þessi uppskrift er notuð í Grillað grænmetis og ávaxta salsa
Meðlæti
Grillað grænmetis og ávaxta salsa
- Hráefni
- » 1/3 ananas
- » 1/2 rauð paprika
- » 1/2 rauðlaukur
- » 1/2 chili
- » 1 tsk hvítlauksmauk
- » 1 msk mangó chutney
- » 1 msk teryakisósa
- » 1 msk balsamic edik
- » 2 msk ólívuolía
- » 1 msk ferskt kóríander
- » salt og pipar
Fyrir 4 | skoða myndskeið
Litríkt, ferskt og gott með öllum grillmat, má einnig nota hvaða annað grænmeti sem manni langar ef eitthvað í uppskriftinni er ekki til.Aðferð
Má ekki vera einfaldara allt grænmetið og ávextirnir eru bara grillaðir í nokkrar mínútur þar til að það aðeins kemur létt grillbragð á grænmetið þá er það tekið af grillinu og skorið í litla bita og smakkað til með olíunni,balsamico og kryddunum .
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1020/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira





















