Meistaramatur
|
mbl
|
29. ágúst
Beikonvafinn skötuselur með klettasalati
- Hráefni
- » 1 kg Skötuselur (hreinsaður)
- » 1 bréf Beikon
- » ferskar kryddjurtir ( til dæmis kóríander)
- » 1 pakki pólenta ( mjöl eða duft)
- » 1 rif hvítlaukur
- » 1 poki klettasalat
- » ólífuolía
- » 1 dós sýrður rjómi
Fyrir 4 - 5
Skötuselur á grillið er sönn hátíð því betri grillfisk er erfitt að finna.Aðferð
Hreinsið skötuselinn og vefjið upp með ferskum kryddum eins og kóríander eða basil. Lokið samskeytum með tannstöngli eða grill pinnum. Grillið á öllum fjórum hliðum og framreiðið með fersku salati, ólífuolíu eða sýrðum rjóma ásamt grillaðri pólentu.Pólentan er löguð samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum og krydduð eftir smekk, til dæmis með parmesan osti, hvítlauk og ferskum kryddjurtum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1021/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira





















