Meistaramatur
|
mbl
|
18. september
Grillhátíð krakkanna
- Hráefni
- » 1pakki SS pylsur
- » SS sinnep
- » tómatsósa
- » 1stk pizzadeig (útflatt grilldeig)
- » 1stk Pizza pronto
- » 100g ostur
- » Álegg eftir smekk
- » 300g Blandaðir ferski ávextir (epli, ferskjur o.s.frv.)
- » 30g púðursykur
- » 30g smjör
- » 1 poki sykurpúðar
Fyrir 4 - 6
Ekki má gleyma yngstu kynslóðinni. Grill er hægt að nota til að galdra fram ýmsar veislur, til dæmis afmæli upp í sumarbústað.Aðferð
Skerið pylsurnar þannig að þær fái kolkrabbaarma (skerið þvert eftir pylsunni til hálfs á tvo vegu). Grillað þannig að armarnir vinda sig og gefa skemmtilega tilbreytingu við vinsælasta rétt landsins.Pizzur eru gerðar eftir smekk hvers og eins, gott er að nota tilbúið grilldeig eða útflatt pizzadeig.
Ávextir eru skrældir og lagðir í álpappír með brúnuðum sykri(eða púðursykri) og smá smjöri. Gott er að setja sykurpúða í lok grilltímans og láta þá bráðna yfir ávextina
Framreiðið með tómatsósu, sinnepi og góða skapinu.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1027/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira




















