Ávaxta-sushi
- Hráefni
- » 400 ml kókosmjólk
- » 400 ml rjómi
- » 115 g jasmínhrísgrjón
- » 85 g sykur
- » ½stk kornin úr vanillustöng
- » e.t.v. 100 g hvítt súkkulaði
- » ávextir eftir smekk
- » balsamsíróp
- » Súkkulaði-nori:
- » 200 g mjólkursúkkulaði
- » 75 ml hunang eða síróp
- » hrísgrjónabúðingur
- » ávextir eftir smekk, skornir í þunnar sneiðar
Fyrir 4 - 6
Hrísgrjónabúðing er hægt að gera skemmtilegri með því að skera þunnar sneiðar af ávöxtum og leggja þær ofan á búðing sem búið er að kæla og móta í bita. Þetta má svo framreiða með prjónum og dýfa ofan í balsamsíróp í stað sojasósu. Ef þú vilt fara alla leið er hægt að útbúa súkkulaði-maki-rúllur úr hrísgrjónabúðingnum – það gæti verið punkturinn yfir i-ið í veislunni ...Aðferð
• Settu kókosmjólk, rjóma, hrísgrjón, sykur og vanillukorn í pott og láttu sjóða við hægan hita í um hálftíma, eða þar til grjónin eru meyr og grauturinn þykkur. Hrærðu öðru hverju svo að grjónin brenni ekki við. • Ef þú vilt hafa búðinginn mjög stífan geturðu saxað hvítt súkkulaði, sett það út í þegar grjónin eru fullsoðin, tekið pottinn af hitanum og hrært þar til súkkulaðið er bráðið. • Breiddu plastfilmu á bakka og smyrðu þykku lagi af hrísgrjónabúðingi á filmuna. Leggðu aðra filmu ofan á og kældu yfir nótt. • Skerðu eða mótaðu kaldan búðinginn í litla bita. Skerðu ávextina í þunnar sneiðar og raðaðu þeim ofan á bitana stuttu áður en búðingurinn er borinn fram. Berðu bitana fram með balsamsírópi.
Súkkulaði-nori:
- Bræddu súkkulaðið og blandaðu hunangi saman við. Geymdu blönduna undir plastfilmu við stofuhita.
- Settu súkkulaðideigið á milli tveggja bökunarpappírsarka og flettu það þunnt út með kökukefli (ef það er of hart má mýkja það í nokkrar sekúndur í örbylgjuofni).
- Smyrðu hrísgrjónabúðingi á deigið, raðaðu ávaxtasneiðum ofan á, vefðu rúlluna upp í sívalning og hertu að með smjörpappír. Rúllan á að líta út eins og maki-rúllurnar sem allir sushi-sérfræðingar (sem eru orðnir margir þessa dagana) ættu að kannast við.
Skerðu rúllurnar í sneiðar með beittum hníf – best er að hita blaðið á hnífnum fyrst – og raðaðu þeim á fat
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Farro með grilluðu grænmeti






















