Meistaramatur
|
mbl
|
24. september
Vanillubúðingur með sýrðum rjóma
Sæktu Flash-spilarann
til að spila myndskeiðið
- Hráefni
- » 250 ml rjómi
- » 200 g sykur
- » 2 stk matarlímsblöð
- » 250 ml sýrður rjómi
- » ½ tsk. vanilludropar eða korn úr 1 vanillustöng
- » 1 askja fersk ber
Fyrir 4 - 6
Í þennan einfalda eftirrétt væri tilvalið að nota haustuppskeruna, nýtínd íslensk bláber eða krækiber – en nú er berjatíminn liðinn og erlend ber henta einnig vel. Einnig má nota frosin ber en þá þarf að sía af þeim safann sem rennur úr þeim er þau þiðnaAðferð
- Leggðu matarlímið í bleyti í kalt vatn í nokkrar mínútur.
- Settu rjóma, sykur og vanillukorn í pott og hitaðu að suðu. Taktu pottinn af hitanum og bræddu matarlímið í rjómanum. Láttu rjómablönduna standa í 10 mínútur.
- Hrærðu sýrðum rjóma saman við og helltu blöndunni í lítil form. Kældu í minnst 1 klst., eða þar til búðingarnir eru orðnir stífir.
- Losaðu búðingana úr formunum og hvolfdu þeim í skálar. Dreifðu berjum yfir og berðu fram.
- Gott er að nota ávaxtamauk og matarlím til að gera froðu í rjómasprautu og nota þá 3-4 blöð á 1 l vökva
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1029/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira





















