Pastakoddar að hætti Grillsins á Hótel Sögu

Hráefni
» 125g semolina hveiti (ítalskt pasta hveiti)
» 125g hveiti
» 140g eggjarauður
» 1stk egg
» Humarfars
» 200g skelflettur humar
» 50g eggjahvíta
» 100g rjómi
» ögn af hvítlauk
» Kryddjurta olía (olía og ferskar kryddjurtir)

Fyrir 4 - 6

Ferskt pasta er skemmtilegt að prófa og fyllt pasta er toppurinn á allri pastagerð. Möguleikarnir eru óþrjótandi og aðeins hugmyndaflugið getur stoppað mann!

Aðferð

Best er að gera pastadeig í matvinnsluvél. Öllu hráefni er blandað saman og látið vinnast vel, deigið þvínæst plastað og geymt í kæli í minnst 1 klst.
Handsnúnar pastavélar eru ekki dýrar (fást í fínni eldhústækjabúðum) og einnig eru skemmtilegar pastavélarnar á KitchenAid hrærivélunum, sem eru til á mörgum heimilum. Loks er hægt að kaupa útflatt pastadeig í stórmörkuðum.
Fyllingin er lögð á milli tveggja laga af deigi og það svo penslað með vatni eða eggjarauðu til að pastablöðin festist saman.
Loks er pastadeigið skorið í sundur með hnífi, kleinujárni eða pizzahníf.

Pasta koddarnir eru eldaðir við suðu í 1-3 mín eftir stærð og framreiddir eftir smekk, sem meðlæti, forréttur eða aðalréttur

Á Grillinu eru koddarnir fylltir með humar sem er unnin í matvinnsluvél með eggjahvítum og rjóma, kryddað til með salti og ögn af hvítlauk og framreiddir í kryddjurtaolíu sem meðlæti með steiktum humarhölum og brokkálsmauki.

Þessi uppskrift er notuð í Brokkkálmauk

Meðlæti

Brokkkálmauk

Hráefni
» 500g Græni hlutinn af brokkkáli
» 1 l Vatn (sjóðandi)
» smá Smjörklípa (má sleppa)
» salt og pipar

Fyrir 4 - 6 | skoða myndskeið

Hér er auðveld lausn fyrir þá sem vilja minnka notkun á rjómasósum en hafa í þeirra stað hollt, bragðmikið og framandi meðlæti úr ódýru hráefni.

Aðferð

Eldið græna hlutann af brokkkálinu í 4 mínútur í sjóðandi vatni með ögn af salti. Færið kálið upp úr vatninu og maukið í matvinnsluvél þar til silkimjúk áferð er komið á maukið. Kælið hratt til að viðhalda græna litnum og hitið upp rétt áður en á að framreiða maukið með ögn af köldu smjöri ásamt salti og pipar eftir smekk. Einnig má þynna maukið út með mjólk eða vatni og þá er holl mauksúpa orðin til.

Steikt epli að dönskum hætti

20.3.2007 Steikt epli koma í staðinn fyrir gamala eplasalatið með majónesinu  Meira »

Grillaðir portobello sveppir

None
9.8.2007 Þessir sveppir eru skemmtilegt meðlæti ,eða sem aðalatriðið í grænmetisrétti.  Meira »

Spínat- og kotasælufylltar torilla kökur með tómatsalsa

None
28.3.2007 Hægt er að sameina matreiðsluhefðir nokkurra landa til að gera skemmtilegan rétt. Til að gera hollan skyndibita er tekin fylling ættuð frá Ítalíu og sett inn í suður-amerískar pönnukökur með skemmtilegum árangri. Meira »

Snitta með lifrarkæfu, stökku beikoni ,steiktum sveppum og hindberjum

None
12.12.2007 Klassískur danskur matur uppfærður í snittu  Meira »

Sítrus og dill-grafinn lax með graflaxsósu

None
17.4.2007 Graflax er lostæti sem flestir þekkja og hver veiðimaður ætti að grafa sinn fisk sjálfur. Hér er auðveld og skemmtileg aðferð til að galdra fram þennan létta og ljúffenga rétt. Meira »

Kalkúnasósa bætt með Calvados og sætar kartöflur

None
26.12.2007 Góð sósa og skemmtilegar kartöflur setja punktinn yfir i-ið með góðum kalkún. Hér er Ægir Friðriksson með skemmtilegan vinkil á áramótapartíið Meira »

Köld sinnepssósa

None
9.7.2007 Þessi sósa er öðruvísi því sýrðum rjóma er breytt í ferð um heiminn með sinnepsdufti og hrísgrjónaediki í aðalhlutverki.  Meira »

Steikt bleikja undir stökku brauði

None
28.2.2008 Skemmtileg útfærsla á steiktum fisk þar sem brauðið verður stökkt með mjúkum fisk undir.  Meira »

Maís salsa

None
25.7.2007 Þessa fersku og einföldu Salsa má alveg leika sér með og ef maður á ekki eitthvað eitt hráefni þá er bara að nota hugmyndaflugið, frábær með hvaða grillmat sem er. Meira »

Appelsínugrafinn lambavöðvi

None
30.5.2007 Ferskur forréttur sem gott er að eiga þegar gesti ber að garði  Meira »

Hummus með stökku nanbrauði

None
15.11.2007 Einfalt snakk eða hluti af pinnaveislu.  Meira »

Lax með mangósalsa og ferskri jógúrtsósu

None
28.3.2007 Lax er mjög hollur, fæst í fiskborðum stórmarkaðanna allt árið og er ekki of dýr. Því er tilvalið að bera hann fram með fersku suðrænu hráefni hvenær árs sem er til að fá sumar í magann. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar