Meistaramatur
|
mbl
|
9. október
Humarhalar að hætti Grillsins með hvítvínsfroðu
- Hráefni
- » 400g humar
- » 50g pastafylling Grillsinns (má sleppa)
- » 1stk laukur
- » 200ml hvítvín
- » 200ml rjómi
- » 50g smjör
- » 20g valhnetur
- » eftir smekk salt og pipar
Fyrir 4 - 6
Humarinn er einn flottasti forrétturinn sem völ er á og hér er hann útbúinn á skemmtilegan hátt.Aðferð
Skelflettið humarinn og fyllið með ögn af pastafyllingu Grillsins ef vill. Þá er hann steiktur á heitri pönnu og framreiddur með hvítvínssósu sem er löguð þannig að humarskel er látin steikjast með sósugrunn að eigin vali, til dæmis lauk, og svo er hvítvíni og rjóma bætt í. Sósan er loks kláruð með ögn af smjöri og valhnetum.Þykkið loks með sósujafnara eða freyðið með töfrasprota svo létt froða myndast og skemmtileg áferð fæst á réttinn.
Þessi uppskrift er notuð í Pastakoddar að hætti Grillsins á Hótel Sögu Brokkkálmauk,
Meðlæti
Pastakoddar að hætti Grillsins á Hótel Sögu
- Hráefni
- » 125g semolina hveiti (ítalskt pasta hveiti)
- » 125g hveiti
- » 140g eggjarauður
- » 1stk egg
- » Humarfars
- » 200g skelflettur humar
- » 50g eggjahvíta
- » 100g rjómi
- » ögn af hvítlauk
- » Kryddjurta olía (olía og ferskar kryddjurtir)
Fyrir 4 - 6 | skoða myndskeið
Ferskt pasta er skemmtilegt að prófa og fyllt pasta er toppurinn á allri pastagerð. Möguleikarnir eru óþrjótandi og aðeins hugmyndaflugið getur stoppað mann!Aðferð
Best er að gera pastadeig í matvinnsluvél. Öllu hráefni er blandað saman og látið vinnast vel, deigið þvínæst plastað og geymt í kæli í minnst 1 klst.Handsnúnar pastavélar eru ekki dýrar (fást í fínni eldhústækjabúðum) og einnig eru skemmtilegar pastavélarnar á KitchenAid hrærivélunum, sem eru til á mörgum heimilum. Loks er hægt að kaupa útflatt pastadeig í stórmörkuðum.
Fyllingin er lögð á milli tveggja laga af deigi og það svo penslað með vatni eða eggjarauðu til að pastablöðin festist saman.
Loks er pastadeigið skorið í sundur með hnífi, kleinujárni eða pizzahníf.
Pasta koddarnir eru eldaðir við suðu í 1-3 mín eftir stærð og framreiddir eftir smekk, sem meðlæti, forréttur eða aðalréttur
Á Grillinu eru koddarnir fylltir með humar sem er unnin í matvinnsluvél með eggjahvítum og rjóma, kryddað til með salti og ögn af hvítlauk og framreiddir í kryddjurtaolíu sem meðlæti með steiktum humarhölum og brokkálsmauki.
Brokkkálmauk
- Hráefni
- » 500g Græni hlutinn af brokkkáli
- » 1 l Vatn (sjóðandi)
- » smá Smjörklípa (má sleppa)
- » salt og pipar
Fyrir 4 - 6 | skoða myndskeið
Hér er auðveld lausn fyrir þá sem vilja minnka notkun á rjómasósum en hafa í þeirra stað hollt, bragðmikið og framandi meðlæti úr ódýru hráefni.Aðferð
Eldið græna hlutann af brokkkálinu í 4 mínútur í sjóðandi vatni með ögn af salti. Færið kálið upp úr vatninu og maukið í matvinnsluvél þar til silkimjúk áferð er komið á maukið. Kælið hratt til að viðhalda græna litnum og hitið upp rétt áður en á að framreiða maukið með ögn af köldu smjöri ásamt salti og pipar eftir smekk. Einnig má þynna maukið út með mjólk eða vatni og þá er holl mauksúpa orðin til.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1032/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira





















