Meistaramatur
|
mbl
|
4. desember
Flott skraut að hætti Karls Viggo landliðsbakara
- Hráefni
- » 200-300g Súkkulaði
Fyrir 4 - 6
Það er hægt að gera skemmtilegt og einfalt skraut sem lyftir eftirréttinum á hærra planAðferð
Þegar unnið er með hágæða súkkulaði þarf að bræða súkkulaðið í 40-45°c og þarf þá að kæla súkkulaðið niður í 31°c sem er kjörhiti fyrir súkkulaði.Hægt er að kæla súkkulaðið með því að hræra 1/3 að fínt söxuðu súkkulaði og hræra greiðlega, líka er hægt að kæla súkkulaði á marmara ef fólk á þannig flottheit.
En þótt margir meistararnir vilja ekki nota overtrek súkkulaði hefur það bjargað mörgum húsfreyjunum, því það þarf ekki að kæla niður og er hægt að nota lstrax eftir bræðslu.
Ekki meira um það, því helst viljum við velja smá fyrirhöfn til að fá góða bragð hágæða súkkulaðis!
Súkkulaði er auðvelt að pensla eða sprauta yfir plastfilmuvafið glas, sniðugt er að nota plastglas eða vatnsblöðrur ef fólk vill ekki hætta fínu kristalglösunum.
Auðvelt að taka einnota glösin af plastfilmunni þannig að skrautið eitt er eftir, tilbúið til framreiðslu.
Þessi uppskrift er notuð í Ofur einföld súkkulaðimús að hætti Karls Viggo landsliðsbakara
Meðlæti
Ofur einföld súkkulaðimús að hætti Karls Viggo landsliðsbakara
- Hráefni
- » 200 g Rjómi
- » 200 g Súkkulaði
- » 300 ml Léttþeyttur rjómi
Fyrir 4 - 6 | skoða myndskeið
Einfaldara er ekki hægt að gera lúxus súkkulaðimús á nokkrum mínútumAðferð
Bræðið súkkulaðið í örbylgjuofni eða í vatnsbaði, það ætti að vera um 40-45°C.Volgum rjóma bætt í smáum skömmtum og hrært greiðlega eftir hverja bunu.
Svo er léttþéttum rjóma bætt varlega í. Berið fram í glösum eða í flottum einföldum súkkulaðiskálum að Karls Viggo hætti.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1043/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira






















