Meistaramatur
|
mbl
|
18. desember
Exotískur ananas og hunangs-dijon gljáður hamborgarhryggur
- Hráefni
- » 1stk SS eða Hagkaups hamborgarhryggur
- » Gljái
- » 2msk Engifer appelsínu marmelaði
- » 2msk dijon hunangs sinnep
- » 2msk mosvado sykur
- » 1tsk saxaður engifer
- » 1tsk passion fruit (ástríðuávöxtur) má sleppa
- » Ferskur Ananas
Fyrir 6 - 8
Hægt er að krydda til hamborgarhrygg með því að bæta ferskum og framandi brögðum án þess að brjóta fjölskylduhefðirnarAðferð
Eldið hamborgarhrygginn eftir leiðbeiningum framleiðenda. Hagkaupshrygginn á t.d. að setja beint í ofn en ss hrygginn er gott að láta í pott, láta suðuna koma upp og leyfa honum að liggja í soðinu.Svo er hryggurinn gljáður með exotíska gljáanum okkar sem gott er að hræra saman kvöldið áður.
Ananasinn er skorinn þunnt og lagður ofan á hrygginn. Ekki er ráðlagt að hækka hitann í botn því þá brennur hryggurinn, best er að setja hann örstutt undir grill fyrir framreiðslu.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1046/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira






















