Meistaramatur
|
mbl
|
18. desember
Ris a la mande - jólabúðingurinn góði
- Hráefni
- » 700g mjólk
- » 100g hrísgrjón
- » 10g kalt smjör
- » 1stk vanillustöng
- » 50g hvítt súkkulaði
- » 250g rjómi
- » 50-100g flórsykur
- » eftir smekk ristaðar möndlur
- » til skrauts hvítt súkkulaði
- » eftir smekk fersk kirsuber
Fyrir 6 - 8
Sumir tala um að það séu ekki jólin nema Ris a la mande sé á jólaborðum og hér er auðveld uppskrift frá Matreiðslumanni ársins 2007, Þráni Frey Vigfússyni.Aðferð
Penslið pottinn með smjöri svo mjólkin brenni ekki við, leyfið suðunni að koma upp á mjólkinni og bætið í hrísgrjónum.
Hrísgjónin eru soðin með vanillustöng í 30-40mín eða þar til þau eru mjúk undir tönn, hrærið hvítu súkkulaði samanvið og kælið.
Rjóminn er þeyttur og flórsykri blandað út í hann. Rétt fyrir framreiðslu er þeyttum rjóma og ristuðum möndlum bætt í ásamt kirsuberja sultu og ferskum kirsuberjum.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1047/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira






















