Meistaramatur
|
mbl
|
31. janúar
Blandaður sushiplatti
Sæktu Flash-spilarann
til að spila myndskeiðið
- Hráefni
Fyrir 4 - 5
Það eru margir sem hafa gaman af því að gera sushi heima og þá eru hrísgrjónin eina alvöru kúnstin, en það eru yfirleitt góðar útskýringar aftan á grjónapakkanum. Síðan er allt leyfilegt svo framarlega sem fiskurinn er splunkunýr og ferskur.Aðferð
Aðferðinni er erfitt að lýsa í orðum svo best er að fylgjast vel með myndbandinu.Þessi uppskrift er notuð í Grillað fiski og skelfisksspjót
Meðlæti
Grillað fiski og skelfisksspjót
- Hráefni
- » 400 g skötuselur, roðflettur og beinhreinsaður
- » 200 g humar ,skelfléttur og hreinsaður
- » 200 g tígrisrækjur, skelfléttar og hreinsaðar
- » 1 stk paprika
- » 1 msk hvítlauksmauk
- » 1/2 rauðlaukur
- » 2 msk ólívuolía
- » 1 tsk ferskt timian, saxað
- » salt og pipar
- » sítrónusafi
- » 1 msk sesamfræ
- » 1 msk soyasósa
- » 1msk sæt chilisósa
Fyrir 4 - 6 | skoða myndskeið
Þetta er skemmtilegt grillspjót sem hægt er að breyta um fiskitegundir að vild, enn það er ekki gott að nota fiska einsog þorsk, ýsu eða karfa , þeir eiga það til að hrynja í sundur við grillun.Aðferð
Skerið skötuselinn í bita og setjið í skál ásamt humrinum og rækjunum og blandið saman með hvítlauknum, timianinu,sítrónusafanum, olíunni,soyasósunni,chilisósunni,sesamfræunum og salti og pipar.Skerið paprikuna og laukinn niður í bita og síðan er öllu skipt á milli manna og þrætt uppá spjót sem er búið að láta liggja í vatni í 2 klst. Þá er spjótið grillað á mjög heitu grilli í ca 4 mín á hvorri hlið eða þar til eldað að eigin smekk.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/1054/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira



















