Meistaramatur
|
mbl
|
7. mars
Lambastrimlar í pudina-tikkasósu með couscous og tortillakökum
- Hráefni
- » Afgangur af lambasteikinni (getur einnig verið kjúklingur, naut eða svínakjöt)
- » Pudina-tikkasósa (getur einnig verið hvaða önnur tilbúinn sósa eins og salsasósa eða tikkamasala til dæmis)
Fyrir 4
Með því að skera afganginn af lambakjötinu í strimla, hræra saman við það bragðmikilli sósu og vefja í tortillaköku með með couscous og grænmeti er hægt að búa til ævintýralegan hollan mat á einfaldan hátt.Aðferð
Skerið kjötið í strimla og setjið í pott ásamt það miklu af sósunni að hún nái að bragðbæta allt kjötið. Látið suðuna koma upp og þá er bara að smakka til með salti og pipar og halda heitu.Meðlæti: Tortillapönnukökur eru aðeins hitaðar á pönnu og síðan er meðlæti alveg frjálst; gott salat, fetaostur eða rifinn ostur, skorið grænmeti eins og tómatar, paprika og laukur og sýrður rjómi svo eitthvað sé nefnt.
Þessi uppskrift er notuð í Couscous
Meðlæti
Couscous
- Hráefni
- » 4 bollar Couscous (ekki með bragðefnum)
- » 4 bollar Vatn
- » 3 msk. Sólþurrkað tómatpestó
- » Salt og pipar og smá sítrónusafi eftir smekk
Aðferð
Blandið couscous-inu saman við pestóið í skál, hellið sjóðandi heitu vatninu yfir og hrærið létt í. Setjið plastfilmu yfir skálina og látið standa í 10 mín. Þá er aðeins hrært í þessu og smakkað til með salti, pipar og sítrónusafa.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/938/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira






















