Meistaramatur
|
mbl
|
7. mars
Kjúklingasalat með engifer, hvítlauk og lime
- Hráefni
- » 1 stk. Eldaður kjúklingur (gott er að nota afganga frá kvöldinu áður)
- » Nam Prik dressing
Aðferð
Rífið kjúklinginn niður og blandið honum saman við dressinguna. Berið fram með sýrðum rjóma og blönduðu salati eftir smekk, til dæmis með baunaspírum, klettasalati, fetaosti eða öðru sem hendi er næst.Þessi uppskrift er notuð í Nam Prik dressing
Meðlæti
Nam Prik dressing
- Hráefni
- » 50 ml sódavatn eða sykursýróp (50 ml vatn og 30 g sykur)
- » safi og börkur af 1 lime
- » 1 rif fínt saxaður hvítlaukur
- » 1 lítil hnúður engifer
- » ½ kjarnhreinsaður chili
- » salt og pipar
- » ferskt kóríander (má sleppa)
- » ferskt dill (má sleppa)
Aðferð
Fínt rífið engifer, hvítlauk og börkinn af lime með fínu rifjárni. Blandið í sykursýrópið (eða sódavatnið), ásamt limesafa og fínt söxuðum kjarnhreinsuðum chili.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/940/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira






















