Dönsk svínasíða að hætti Gunnars Karls

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið
Hráefni
» 1/2 stk Svínasíða
» 1 stöng kanill stöng
» 5 stk Neigull
» 1/2 bungt Rósmarin bungt
» 3l kjúklingasoð (vatn og kraftur)

Fyrir 4 - 6

Gunnar var undir dönskum áhrifum þegar hann ákvað að kenna okkur að gera hægeldaða svínasíðu og bera fram með henni mjúkt blómkálsmauk og mandarínumarmelaði.

Aðferð

Snyrtið síðuna og leggið í stóran pott eða ofnskúffu. Hellið vatni í og bætið við kanil, negul og rósmarín. Ef til er soð er gott að nota það í stað vatns eða jafnvel bæta smá kjúklingakrafti út í vatnið. Lokið er þá sett á og þetta bakað í ofni við 80 gráður í ca 8 tíma. Kælið og skerið svo niður í skífur og steikið.

Þessi uppskrift er notuð í Blómkálsmauk Steikt epli að dönskum hætti, Mandarínumauk,

Meðlæti

Blómkálsmauk

Hráefni
» 300 g Blómkál
» Eftir smekk Salt
» 200 ml Mjólk
» 100 ml Rjómi
» 2 msk. Smjör

Fyrir 4 - 6 | skoða myndskeið

Blómkálsmauk er skemmtilegt meðlæti og ætti að slá í gegn bæði með fiski og kjöti

Aðferð

Bitið niður blómkál. Takið nokkra fallega hausa og forsjóðið í saltvatni og steikið svo með eplunum hér að ofan. Takið restina og sjóðið í 50/50 rjóma og mjólk uns alveg meyrt. Setjið í blender og vinnið uns maukið er algerlega mjúkt. Bætið með salti og smjöri.

Steikt epli að dönskum hætti

Hráefni
» 2-3 stk. Epli
» 2 msk. Olía
» 2 msk. Smjör (má sleppa)
» 1 grein Rósmarín
» Eftir smekk Karrí
» Eftir smekk Salt

Fyrir 4 - 6

Steikt epli koma í staðinn fyrir gamala eplasalatið með majónesinu

Aðferð

Afhýðið og skerið eplið í báta. Steikið á pönnu upp úr smá olíu og smjöri ásamt rosmaríngrein. Þegar fallegm gljáa er náð sáldrið karríi yfir uns hæfilega sterkt. Saltið ögn.

Mandarínumauk

Hráefni
» 4 stk . Mandarínur
» 400 g Sykur
» 400 g Vatn
» 1 msk. Smjör
» 50 ml Rjómi

Fyrir 4 - 6 | skoða myndskeið

Mandarínumauk er ný útfærsla af sætu meðlæti sem smellpassar með svínakjöti

Aðferð

Skerið mandarínurnar í ca 10 bita. Sjóðið svo í sykurlegi í fjórgang, alltaf nýjum og nýjum. Þetta er gert til að ná beiskjunni úr mandarínunum. Setjið svo á sigti og náið mesta vökvanum af. Setjið í matvinnsluvél og vinnið þar til falleg áferð myndast. Bætt með smá smjöri og rjóma. (Hægt er að notast við venjulegt appelsínumarmelaði sem er unnið í blender með örlitlum sýrðum rjóma. Ef notað er marmelaði skal nota 4 hlutar marmelaði / 1 hluti sýrður rjómi.)

Humarfyllt Nautalund með skemtilegum kryddum

None
9.8.2007 Þessi er svona smá spariútgáfa af grillaðri nautalund vel kryddaðri sem er fyllt með mildum humri.   Meira »

Létteldaður lax með asíu ívafi

None
16.7.2007 Lax er ekki bara ódýr heldur líka hollur, góður og léttur í maga og passar því vel þegar fólk ætlar að lyfta sér upp  Meira »

Ofnbakaðar kartöflur með rósmarin

None
2.5.2007 Bakaðar kartöflur eru góðar en enn betri eru kartöflur sem búið er að skera í og krydda með skemmtilegum kryddum  Meira »

Íslenskur þorskur að hætti Agnars Sverrissonar á Texture í London

None
23.10.2007 Agnar er einn af okkar fremstu kokkum og gaman er að sjá menn með mikla ástríðu fyrir matargerð. Agnar hefur ásamt Óskari Finnssyni og fleirum stofnað veitingastað í London sem vert er að skoða http://www.texture-restaurant.co.uk/ Meira »

Strákanesti Gabríels Kristins

None
14.3.2007 Sjö ára fótboltastrákur velur sér nesti sem fulltrúi ungu kynslóðarinnar.  Meira »

Fylltar tortillakökur með skinku og ost, fersku epli og krakkadrykk

None
14.3.2007 Viljum byrja á að kynna fyrir börnum hollan íslenskan nútímamat í bland við íslenska osta og aðrar mjólkurafurðir, kjöt, fisk og framandi ávexti og grænmeti. Þá hafa börnin kraft til að mæta framtíðinni með íslenskan mat sem eldsneyti en ekki skyndibitamat að erlendri fyrirmynd! Meira »

Skyrfrauð með ferskum bláberjum

None
27.6.2007 Þetta frauð er einstaklega ferskt og fer vel með berjum eins og bláberjum  Meira »

Humarhalar að hætti Grillsins með hvítvínsfroðu

None
9.10.2007 Humarinn er einn flottasti forrétturinn sem völ er á og hér er hann útbúinn á skemmtilegan hátt.  Meira »

Mangóklessa

6.3.2007 Gott að borða!  Meira »

Súkkulaðiástríða (Plaisir au chocolat)

None
6.2.2008 Þetta er einföld hveitilaus súkkulaðikaka af bestu sort.  Meira »

Suðrænn og seiðandi skötuselur með ferskum brögðum

None
2.1.2008 Þessi réttur er ættaður frá Los Capos í Mexico, hér er hægt að elda sér til hita með því að borða framandi en ferskan rétt á köldum íslenskum vetrarkvöldum Meira »

Jógúrtsósa

28.3.2007 Auðveldasta sósa í heimi.  Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar