Meistaramatur
|
mbl
|
28. mars
Lax með mangósalsa og ferskri jógúrtsósu
- Hráefni
- » 160 g Fjórar laxasteikur
- » Salat að eigin vali
Fyrir 4 - 6
Lax er mjög hollur, fæst í fiskborðum stórmarkaðanna allt árið og er ekki of dýr. Því er tilvalið að bera hann fram með fersku suðrænu hráefni hvenær árs sem er til að fá sumar í magann.Aðferð
Flakið, beinhreinsið og skerið fituna af. Steikið öðrum megin á pönnu og framreiðið með salsa, salati og jógúrtsósunni.Þessi uppskrift er notuð í Jógúrtsósa Mangó- og sætkartöflusalsa,
Meðlæti
Jógúrtsósa
- Hráefni
- » 1 dós Jógúrt
- » 2-4 skeiðar eftir smekk Mango chutney
Fyrir 4 - 6
Auðveldasta sósa í heimi.Aðferð
Blandið saman jógúrt og góðu mango chutney.Mangó- og sætkartöflusalsa
- Hráefni
- » 50 ml Extra virgin ólífuolía
- » 1 rif Hvítlaukur
- » ½ stk. Fínt saxað kjarnhreinsað chilli
- » 1 stk. Laukur
- » 1 stk. Safi úr einum lime ávexti
- » 1/5 búnt Nokkur lauf ferskt kóríander
- » Salt og pipar
- » 1 stk. Mangó
- » 1-2 stk. Sætar kartöflur
- » 1 stk. Papríka
Fyrir 4 - 6
Mangósalsa er mjög ferskt, en hægt er að skipta út mangó fyrir aðra ávexti eða grænmeti.Aðferð
Ávöxturinn er skorinn ásamt lauk, chili og hvítlauk. Öllu blandað saman við ólífuolíu, papríku og léttsoðnar sætar kartöflur. Kryddað með fersku kóríander og salt og pipar eftir smekk.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/959/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira




















