Meistaramatur
|
mbl
|
28. mars
Spínat- og kotasælufylltar torilla kökur með tómatsalsa
- Hráefni
- » 4 stk. Tortilla pönnukökur
- » 1 poki Spínat
- » 2 msk. Kryddsmjör með kryddjurtum (má nota ólífuolíu)
- » 1-2 dósir Kotasæla
- » 2 msk. Mascarpone ostur
- » Salt og pipar
- » Sýrður rjómi eftir smekk
- » nokkur blöð Romane salat
Fyrir 4 - 6
Hægt er að sameina matreiðsluhefðir nokkurra landa til að gera skemmtilegan rétt. Til að gera hollan skyndibita er tekin fylling ættuð frá Ítalíu og sett inn í suður-amerískar pönnukökur með skemmtilegum árangri.Aðferð
Gerið fyllinguna á pönnu, látið leka af henni í sigti og fyllið tortilla pönnukökurnar með henni. Ofnbakið með ögn af osti og kotasælu og berið fram með salsa og sýrðum rjóma.Þessi uppskrift er notuð í Tómatsalsa
Meðlæti
Tómatsalsa
- Hráefni
- » 1 box Kirsuberjatómatar
- » 1 lítil Vorlaukur
- » 1 rif Hvítlaukur
- » safi úr 1 stk. Lime
- » 1/3 búnt Saxað basil
- » 100 ml Extra virgin ólífuolía
- » salt og pipar eftir smekk
Fyrir 4 - 6
Tómatsalsa er vel þekkt en ferskt tómatsalsa er ferskleiki í skál og ætti að prófa með ýmsum réttumAðferð
Blandið saman skornum tómötum, lauk, hvítlauk, chili og extra virgin ólífuolíu. Kryddið með lime, salti, pipar og ferskri kryddjurt, til dæmis basil eða kóríander.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/962/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira






















