Fylltur lambahryggur á beini með apríkósum, fetaosti, furuhnetum og cumminkryddi.

Hráefni
» 1stk lambahryggur
» 10stk apríkósur
» 50g furuhnetur
» 10g brauðraspur
» 3g cummin
» 30g fetaostur í olíu
» salt og pipar

Fyrir 4 - 6

Margir hafa lent í því að lambalundirnar, sem eru einn besti vöðvinn á hryggnum, vilja verða ofeldaðar og þurrar þegar hryggurinn er tilbúinn . Séu þær hinsvegar teknar af og notaðar til fyllingar ásamt apríkósum, furuhnetum og cumin kryddi, ásamt mjúkum fetaosti, þá er allur hryggurinn tilbúinn á sama tíma og kjötið safaríkt eftir því.

Aðferð

Skerið meðfram beininu ofan frá, skerið í fituna og fjarlægið lundirnar neðan af hryggnum, skerið lundirnar í bita og fyllið meðfram beininu sitt hvoru megin við hryggvöðvann með lambalundum, apríkósum, fetaosti og furuhnetum. Stráið yfir brauðraspi og kryddið með salti, pipar og cummin kryddi. Bakið í ofni við 220°C í 30 mínútur og lækkið svo niður í 150°C í um 30-50 mínútur (getur verið breytilegt eftir ofnum) eða þar til kjarnhiti nær 62°C.

Sashimiplatti

None
14.2.2008 Sashimi er þunnt skorinn fiskur og borðaður með soyasósu ,pikkluðu engiferi og wasabi. Best er að hafa alveg splunkunýjan fisk þar sem fiskurinn er borðaður hrár, einnig er hægt að vera með skelfisk eins og rækjur, humar, hörpuskel svo eitthvað sé nefnt. Meira »

Grænmetis Sósa TLH (tómatur, Laukur, Hvítlaukur)

None
27.6.2007 Þetta er skemmtileg Sósa með kjöt, fisk eða pastaréttum  Meira »

Grillpinnar með kjúklingalundum og nautakjöti

None
4.9.2007 Einfaldari pinnamatur er vandfundinn: kjöt á pinna, sett á grillið í góðum kryddlegi og veislan er klár!  Meira »

Peru, osta og engiferfylltur kalkúnn með kryddjurtum og íslensku smjöri

None
26.12.2007 Kalkúnn er sniðugur í stærri matarboð og hér er leynivopnið afhjúpað til að ná mjúkum bringum og safaríkum lærum.  Meira »

Ertu í mat? Kokkalandsliðið á bak við tjöldin (þáttur 1)

None
26.1.2010 Landslið Klúbbs matreiðslumeistara "Kokkalandsliðið" hefur hafið undirbúning sinn fyrir næsta stórmót! Að þessu sinni er það heimsmeistaramótið í matreiðslu í Lúxemborg 2010 sem stefnan er sett á Undirbúningur fyrir heimsmeistaramót í matreiðslu sem haldið verður á næsta ári stendur nú sem hæst. Til að kynna sögu liðsins og frábæran árangur íslenskra matreiðslumanna á erlendri grundu, hefur Klúbbur matreiðslumeistara ákveðið að framleiða 3 sjónvarpsþætti um Kokkalandsliðið okkar. Þar sem matreiðsla og efni um mat nýtur gríðarlegra vinsælda í sjónvarpi þykir okkur tímabært að almenningur fái tækifæri til að kynnast starfi Kokkalandsliðsins heima í stofu. Meira »

Matsuhisa dressing að hætti grunnskólameistaranna

None
22.5.2007 Fersk sósa með asískum blæ.  Meira »

Chillisambal

None
19.6.2007 Sterk og góð chili sulta að hætti Sjávarkjallarans  Meira »

Grillað fiski og skelfisksspjót

None
22.8.2007 Þetta er skemmtilegt grillspjót sem hægt er að breyta um fiskitegundir að vild, enn það er ekki gott að nota fiska einsog þorsk, ýsu eða karfa , þeir eiga það til að hrynja í sundur við grillun. Meira »

Kryddbrauð með fetaosti

None
16.5.2007 Kryddbrauð er mjúkt brauð sem auðvelt er að nota til að hreinsa leifar af góðri sósu af disk eða hvítlauksmjöri með humar svo ekkert fari til spillis Meira »

Tómat og banana chutney og kókos sýrður rjómi

None
13.8.2007 þetta er ný og framandi útgáfa af salsa og kokos sýrður rjóma  Meira »

Lauksulta

None
8.5.2007 Lauksulta er skemmtilegt meðlæti og er ódýrt í þokkabót  Meira »

Humarfyllt Nautalund með skemtilegum kryddum

None
9.8.2007 Þessi er svona smá spariútgáfa af grillaðri nautalund vel kryddaðri sem er fyllt með mildum humri.   Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar