Meistaramatur
|
mbl
|
9. apríl
Fersk lime sósa
- Hráefni
- » 150 ml Sýrður rjómi, 18%
- » 50 ml Ólífuolía
- » 1-2 stk. Hvítlauksgeirar (má sleppa)
- » salt og pipar
- » 1 stk Lime börkur og safi
- » 1tsk hunang (má sleppa)
- » ½ stk. Chili (kjarnhreinsaður) má sleppa
- » ½ bungt Ferskur kóríander má sleppa
Fyrir 4 - 5
Sósan er mjög fersk og passar með öllum grillmat ásamt skelfisk eða fiskréttum.Aðferð
Þeytið saman ólífuolíu og sýrðum rjóma. Afhýðið og pressið hvítlauk og blandið saman við. Kryddið með salti, pipar, hunangi og lime-safa og fínt rifnum börk af lime. Sósunni má gefa asískan blæ með því að bæta við chili og ferskum kóríander.Þessi uppskrift er notuð í Suðrænn rækju kokteill
Meðlæti
Suðrænn rækju kokteill
- Hráefni
- » 200g Rækjur
- » 1 bungt Klettasalat (Má sleppa)
- » 100g Ferskur ananas
- » 100g Þroskað avacato (lárpera)
- » Nokkur lauf Kóríander
- » 1stk Safi og börkur af lime
- » 20ml Extra virgin ólífuolía
- » 1 rif Hvítlaukur
- » ½ stk Kjarnhreinsaður chili
- » Salt og ferskur pipar í millu
- » 4 skamtar lime sósa (sjá uppskrift)
Fyrir 4 - 6 | skoða myndskeið
Rækju kokteill var vinsælasti rétturinn á íslandi í mörg ár en hægt er að ferska þenna góða rétt með sýrðum rjóma í stað gömlu kaloríu bombunnar sem þekkt er sem kokteill sósa, framandi ávöxtum og kryddumAðferð
Afþýðið og þerrið rækjurnar í sigti, setjið svo í glös eða djúpan disk. Með ferskum skornum ananas, avacato ,(klettasalati), blandið saman ólífuolíu, lime börk, chilli, söxuðum hvítlauk og kóríander. kreistið lime safann yfir rækju kokteillinn og skreytið með lime sósunni og nokkrum laufum kóríander.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/968/
Leit að uppskriftum og greinum
Farro með lax og parmesan
Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti
Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira





















