Sítrus og dill-grafinn lax með graflaxsósu

Hráefni
» Ca. 1 1/2 kg Laxaflak (beinhreinsað, biðjið fisksalann að gera það fyrir ykkur)
» 100 g Salt
» 70 g Sykur
» 10 g (ca ½ tsk) Svartur pipar
» (eftirfarandi bragðefnum má skipta út fyrir önnur ef eitthvað er ekki til í kryddskápnum)
» 1 msk Fennel duft
» 1 msk Kóríander duft
» 3 msk Dill
» af 1 sítrónu Sítrónubörkur
» 1 msk Fersk mynta söxuð gróft (má sleppa)

Fyrir 4 - 6

Graflax er lostæti sem flestir þekkja og hver veiðimaður ætti að grafa sinn fisk sjálfur. Hér er auðveld og skemmtileg aðferð til að galdra fram þennan létta og ljúffenga rétt.

Aðferð

Blandið öllum kryddum saman og stráið 1/3 af blöndunni í botninn á bakka. Leggið laxaflakið í bakkann þannig að roðið snúi niður og stráið svo restinni af kryddinu yfir flakið og lokið bakkanum vel með plastfilmu. Látið standa úti á borði í 3 klst og síðan inni í kæli í 24 klst. Þá er flakið hreinsað undir köldu vatni og þerrað á pappír. Loks er fersku dilli stráð yfir og svo laxinn sneiddur þunnt og borinn fram með graflaxsósu og ristuðu brauði.

Ofur einföld súkkulaðimús að hætti Karls Viggo landsliðsbakara

None
4.12.2007 Einfaldara er ekki hægt að gera lúxus súkkulaðimús á nokkrum mínútum  Meira »

Blandaður sushiplatti

None
31.1.2008 Það eru margir sem hafa gaman af því að gera sushi heima og þá eru hrísgrjónin eina alvöru kúnstin, en það eru yfirleitt góðar útskýringar aftan á grjónapakkanum. Síðan er allt leyfilegt svo framarlega sem fiskurinn er splunkunýr og ferskur. Meira »

Sósa fyrir Foie gras (Franska andalifur) að hætti Sjávarkjallarans

None
19.6.2007 Þetta er sælkerasósa sem skemmtilegt er að prófa  Meira »

Litlar hafragrauts-pönnukökur

None
23.4.2007 Amerískar pönnukökur er fastur liður vestan hafs en hér erum við með hollari útgáfu sem gott er að borða með jógúrt hræring og ferskum berjum Meira »

Ertu í mat? Kokkalandsliðið á bak við tjöldin (þáttur 3)

None
26.1.2010 Þriðji þáttur um kokkalandsliðið sem ber heitið "Ertu í mat?" er kominn á netið, en hann sýnir undirbúning hjá kokkalandsliðinu fyrir heimsmeistarakeppnina sem haldin verður Expogast- Culinary world cup í Lúxemborg dagana 20. - 24. nóvember 2010 næstkomandi og eru hér áður óbirtar myndir af matnum o.m.fl. Sjón er sögu ríkari. Meira »

Fennelsalat að hætti Sigga Gísla

None
12.6.2007 Fennel hefur anís bragð og er því sérstaklega gott með fisk  Meira »

Hafragrautur í sparifötunum

23.4.2007 Hafragrautur ætti að vera undirstaðan í hverjum morgunmat en hér er hann settur í sparifötin og ættu flestir að vilja borða þennan rétt á sunnudögum eða þegar á að töfra fram fljótlegan og hollan rétt. Meira »

Grillað grænmetis og ávaxta salsa

None
9.8.2007 Litríkt, ferskt og gott með öllum grillmat, má einnig nota hvaða annað grænmeti sem manni langar ef eitthvað í uppskriftinni er ekki til. Meira »

Snitta með lifrarkæfu, stökku beikoni ,steiktum sveppum og hindberjum

None
12.12.2007 Klassískur danskur matur uppfærður í snittu  Meira »

Skemmtileg ostaþrenna: mangó-chutney og kóríander, ólívuolía og hvítlaukur, hindber og hunang

None
4.4.2007 Það er ekki mikið sem slær út volgan ost á stökku kexi. Hér er góð tilbreyting við gamla ostabakkann ásamt nýjum mildum geitaosti sem er nýr fyrir Íslendingum en fastur þáttur í lífi ostagæðinga erlendis. Meira »

Grillað fiski og skelfisksspjót

None
22.8.2007 Þetta er skemmtilegt grillspjót sem hægt er að breyta um fiskitegundir að vild, enn það er ekki gott að nota fiska einsog þorsk, ýsu eða karfa , þeir eiga það til að hrynja í sundur við grillun. Meira »

Stelpunesti Maríu Lívar

None
14.3.2007 Átta ára jazzballettstelpa velur sér nesti sem fulltrúi ungu kynslóðarinar.  Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar