Jógúrt hræringur

Hráefni
» 1bolli Hafragrautur
» 1 dós Jógúrt að eigin vali
» ½ stk börkur af sítrónu eða limeávexti
» Fersk ber eða bananar
» Afskurður af berjum og ögn af sykri (má sleppa sykri)
» Hunang (má sleppa)

Fyrir 1 - 3

Þeir sem vilja hollan og kraftmikinn morgunmat hræra gjarna saman skyr i og hafragraut, og er það jafnan kallað hræringur. Hér kemur skemmtileg útgáfa sem kalla mætti "jógúrt-hræring"

Aðferð

Setjið afskurðinn af berjunum í örbylgjuofn með sykri (ef á að nota sykur) annars berin elduð í 2 mín á hæsta hita, safinn er sigtaður frá og gefin með.
Hafragrauturinn er hrærður með jógúrt og fínt rifinn sítrónubörkur er blandaður saman við.
Annað hvort er hræringurinn settur á disk með berjum og berjasafanum eða raðað lagskipt í glerglas svo falleg og litrík lög myndast. Gott er að læða smá hunangi með til að milda sýruna frá berjunum en það er þó ekki nauðsynlegt ef sæt og safarík ber eru notuð

Þessi uppskrift er notuð í Litlar hafragrauts-pönnukökur Hafragrautur í sparifötunum,

Meðlæti

Litlar hafragrauts-pönnukökur

Hráefni
» 1 ½ bolli Hafragrautur eða (Fljót eldað örbylgju haframjöl)
» 1 bolli Hveiti eða fínt speltmjöl
» 2msk Púðursykur
» 2tsk Lyftiduft
» 1/4tsk Salt
» 1 ½ Bolli Mjólk
» 2 Egg
» 2msk Smjör eða annað til steikingar
» ½ bolli Pecan hnetur (má sleppa)

Fyrir 2 - 4 | skoða myndskeið

Amerískar pönnukökur er fastur liður vestan hafs en hér erum við með hollari útgáfu sem gott er að borða með jógúrt hræring og ferskum berjum

Aðferð

Blandið öllu í skál og steikið á pönnu í smá smjöri á meðal hita, snúið við þegar loftbólur eru hættar að myndast. Brúnið hinum megin og framreiðið með jógúrt hræring og ferskum berjum eða með rjóma og sultu

Hafragrautur í sparifötunum

Hráefni
» 1bolli Haframjöl
» 1-2 bollar Vatn eða mjólk
» smá Salt

Fyrir 2 - 4

Hafragrautur ætti að vera undirstaðan í hverjum morgunmat en hér er hann settur í sparifötin og ættu flestir að vilja borða þennan rétt á sunnudögum eða þegar á að töfra fram fljótlegan og hollan rétt.

Aðferð

Hitið samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum eða hitið í örbylgjuofni í u.þ.b. 2 mín. Hrærið saman við jógúrt eða gerið pönnukökurnar góðu. Eins er hægt að borða grautinn á gamla mátann - með ögn af mjólk og dálitlum kanil.

Grænmetis Sósa TLH (tómatur, Laukur, Hvítlaukur)

None
27.6.2007 Þetta er skemmtileg Sósa með kjöt, fisk eða pastaréttum  Meira »

Kartöflu og sveppa-gratín

None
6.6.2007 Sveppir og Kartöflur það hljómar alltaf vel er það ekki?  Meira »

Léttreykt holulambalæri með íslensku smjöri, kryddjurtum og hvítlauk

None
16.7.2007 Það er mjög gaman að gera holulæri og er hægt að létta sér lífið í bústaðnum með að henda lærinu í holuna og sækja það, ljúffengt nokkru síðar. Meira »

Beikonvafinn skötuselur með klettasalati

None
29.8.2007 Skötuselur á grillið er sönn hátíð því betri grillfisk er erfitt að finna.  Meira »

Lauksulta

None
8.5.2007 Lauksulta er skemmtilegt meðlæti og er ódýrt í þokkabót  Meira »

Maís salsa

None
25.7.2007 Þessa fersku og einföldu Salsa má alveg leika sér með og ef maður á ekki eitthvað eitt hráefni þá er bara að nota hugmyndaflugið, frábær með hvaða grillmat sem er. Meira »

Satay jarðhnetusósa

None
4.9.2007 Ekki er hægt að hafa alvöru Satay grill nema hafa góða Satay sósu með.  Meira »

Ertu í mat? Kokkalandsliðið á bak við tjöldin (Þáttur 2)

None
26.1.2010 Annar þáttur um kokkalandsliðið sem ber heitið "Ertu í mat?" er kominn á netið, en hann sýnir undirbúning hjá kokkalandsliðinu fyrir ÓL 2008 í Erfurt. Sjón er sögu ríkari. Meira »

Humar að hætti Hrefnu á Sjávarkjallaranum

None
19.6.2007 Einn vinsælasti réttur Sjávarkjallarans eldaður að hætti Hrefnu sem er að fara opna nýtt veitingahús, Fiskimarkaðinn.   Meira »

Ris a la mande - jólabúðingurinn góði

None
18.12.2007 Sumir tala um að það séu ekki jólin nema Ris a la mande sé á jólaborðum og hér er auðveld uppskrift frá Matreiðslumanni ársins 2007, Þráni Frey Vigfússyni. Meira »

Fennelsalat að hætti Sigga Gísla

None
12.6.2007 Fennel hefur anís bragð og er því sérstaklega gott með fisk  Meira »

Kalkúnasósa bætt með Calvados og sætar kartöflur

None
26.12.2007 Góð sósa og skemmtilegar kartöflur setja punktinn yfir i-ið með góðum kalkún. Hér er Ægir Friðriksson með skemmtilegan vinkil á áramótapartíið Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar