Steiktur saltfiskur með brúnuðu kryddsmjöri að hætti Eyþórs

Hráefni
» 100 gr ósaltað smjör
» ½ stk fínt skorinn rauður chili
» ½ stk fínt skorinn skarlotulaukur
» 1 msk fínt skorinn graslaukur
» eftir smekk rauðvínsedik
» 4-5 falleg saltfisk hnakkastykki ca 150 gr stk
» hveiti
» ólífuolía
» 1/2 poki klettasalat

Fyrir 4 - 5

Landliðsmaðurinn Eyþór Rúnarsson yfirmatreiðslumaður á veitingarstað Sigga Hall sýnir okkur hvernig best er að steikja saltfisk að spænskum hætti

Aðferð

Brúnað smjör (hnetu smjör)
Setjið smjörið í pott og á hæsta hita. Hrærið vel í á meðan, þegar smjörið er farið að taka dökkan lit hellið því yfir í annan pott í gegnum kaffisíu. Setjið smjörið eftur í pott og ylið upp á því, setjið fyrst chili ofan í svo skarlottulaukinn og að lokum graslaukinn. Smakkið til með salti, pipar og rauðvínsedikinu.

Saltfiskur
Þerrið fiskinn vel veltið honum upp úr hveitinu. Hellið vel af ólífuolíu í pönnu eða svo að olían nái upp að helmingshæð fisksins. Hitið olíuna þar til hún er vel heit og setjið svo fiskinn ofan í hana og steikið hann á báðum hliðum þar til hann er orðin gullin brúnn.framreiðið með Kletta salati og
Extra virgin ólífuolíu

Þessi uppskrift er notuð í Smjörsoðnar rófur Lauksulta , Steiktar kartöflur ,

Meðlæti

Smjörsoðnar rófur

Hráefni
» 1 stk meðalstór rófa
» 100 gr smátt skorið smjör
» 2 msk fínt skorin graslaukur
» Salt
» Pipar

Fyrir 4 - 5 | skoða myndskeið

Rófur er hluti að matarmeningu íslendinga og ætti að prófa þær við fleiri tilefni en í rófustöppu

Aðferð

Skrælið rófuna og skerið í helming og svo í fína báta. Setjið bátana í pönnu með botnfylli af vatni ásamt smjörinu. Eldið í 10-15 mín eða þar til rófurnar eru orðnar mjúkar í gegn. Bætið vatni við ef þurfa þykir á meðan. Kryddið með salti og pipar og dreifið graslauknum yfir.

Lauksulta

Hráefni
» 1 stk laukur
» 2 msk ólífuolía
» 1 msk fínt skorin steinselja
» eftir smekk Rauðvínsedik
» eftir smekk Salt
» eftir smekk Hvítur pipar

Fyrir 4 - 5 | skoða myndskeið

Lauksulta er skemmtilegt meðlæti og er ódýrt í þokkabót

Aðferð

Skrælið og skerið laukinn í fernt og svo í fínar skífur. Hellið olíunni í pottinn og setjið svo laukinn ofan á. Eldið við lágan hita í ca 1 ½ tíma. Eða þar til laukurinn er orðinn mjúkur undir tönn. Smakkið til með rauðvínsedikinu, saltinu og piparnum.

Steiktar kartöflur

Hráefni
» 16 stk soðnar smáar kartöflur
» Ólífuolía til steikingar
» 1/4 bungt Fínt skorinn steinselja
» Salt
» Pipar

Fyrir 4 - 5

Nýjar kartöflur steiktar í ólífuolíu eru algjört sælgæti

Aðferð

Skerið kartöflurnar til helminga. Hellið vel af olíu yfir pönnuna raðið kartöfluna á hana með sárið niður. Steikið þar til þær eru gullinbrúnar,
Snúið þeim við og kryddið með saltinu og piparnum. Stráið svo steinseljunni yfir í lokin.

Sítrus og dill-grafinn lax með graflaxsósu

None
17.4.2007 Graflax er lostæti sem flestir þekkja og hver veiðimaður ætti að grafa sinn fisk sjálfur. Hér er auðveld og skemmtileg aðferð til að galdra fram þennan létta og ljúffenga rétt. Meira »

Kartöflu og sveppa-gratín

None
6.6.2007 Sveppir og Kartöflur það hljómar alltaf vel er það ekki?  Meira »

Tómatsalsa

28.3.2007 Tómatsalsa er vel þekkt en ferskt tómatsalsa er ferskleiki í skál og ætti að prófa með ýmsum réttum  Meira »

Grænmetis Sósa TLH (tómatur, Laukur, Hvítlaukur)

None
27.6.2007 Þetta er skemmtileg Sósa með kjöt, fisk eða pastaréttum  Meira »

Kjúklingasalat með engifer, hvítlauk og lime

None
7.3.2007 Þetta salat er sniðugt eftir kjúklingaveislu gærdagsins eða þegar lítil tími er til eldamennsku. Þá er fljótlegt að grípa eldaðan kjúkling í stórmarkaðnum, rífa niður á 5 mínútum og blanda við fersk bragð ættað frá Asíu - breyta þreyttum afgöngum í spennandi ferðalag bragðlaukanna! Meira »

Auðvelt og skemmtilegt konfekt

None
7.11.2007 Hér gerum við skemmtilegt konfekt að franskri fyrirmynd Valrhona skólans í Rónardalnum.  Meira »

Appelsínu og rúsínu-balsamico

None
30.5.2007 Sætsósa með ferskum appelsínukeim  Meira »

Skemmtilegar samlokur með kæfu og banana, bláberjum og ostarúllur með gúrku

None
14.3.2007 Hvernig getum fengið börnin til að smakka á nýjum og hollum hráefnum, það gæti þurft nokkrar tilraunir og það þarf að hugsa um að bera nýjungar fram á skemmtilegan hátt! Meira »

Ofnbakaðar spergil- og camenbertfylltar rauðspretturúllur

None
6.6.2007 Mjúkur camenbert passar vel með mildri áferð rauðsprettunar og ferskum spergli  Meira »

Maís salsa

None
25.7.2007 Þessa fersku og einföldu Salsa má alveg leika sér með og ef maður á ekki eitthvað eitt hráefni þá er bara að nota hugmyndaflugið, frábær með hvaða grillmat sem er. Meira »

Saumaklúbbakaka Örvars landliðsbakara

None
27.11.2007 Hér kemur girnileg og spennandi kaka sem gaman væri að prófa!  Meira »

Graflaxsósa

None
17.4.2007 Allir þekkja graflaxsósuna en kunna allir að laga hana?  Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Farro með lax og parmesan | f.truncatewords(15)}

Farro með lax og parmesan

Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk ... Meira
Farro með grilluðu grænmeti | f.truncatewords(15)}

Farro með grilluðu grænmeti

Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar