Meistaramatur
|
mbl
|
16. maí
Humarhalar með hvítlauk
Sæktu Flash-spilarann
til að spila myndskeiðið
- Hráefni
- » 1 kg humarhalar í skel
- » ½ búnt flatblaðssteinselja eða kóríander
- » 1 stk. hvítlauksgeiri
- » 2 msk. Ólífuolía eða smjör (gott er að nota krydd smjör)
- » 1 msk. maldon sjávarsalt
Fyrir 4 - 5
Humar er alltaf toppurinn á skemmtilegri máltíðAðferð
Klippið ofan í humarskeljarnar með skærum og brjótið skeljarnar þannig að hægt sé að setja humarkjötið ofan í skeljarnar eftir eldun. Skerið í humarinn og fjarlægið svörtu görnina. Líka er hægt að nota humarinn skelflettan eða setja hann á grillpinna. Saxið steinseljuna eða kóríanderinn. Afhýðið og pressið hvítlauk og hrærið saman við ólífuolíu. Penslið humarinn með hvítlauksolíunni og stráið maldon sjávarsalti og saxaðri steinselju yfir.Steikið á pönnu, Grillið í ofni eða á útigrilli.Þessi uppskrift er notuð í Kryddbrauð með fetaosti
Meðlæti
Kryddbrauð með fetaosti
- Hráefni
- » 450g hveiti
- » 1/2 msk salt
- » 30 g sykur
- » 12 g ger
- » 2msk blandaðar kryddjurtir
- » 230g rjómaostur
- » 1stk egg
- » 200ml mjólk
- » ½ búnt timjan (garðablóðberg)
- » ½ dós fetaostur í kryddlegi
Fyrir 4 - 6 | skoða myndskeið
Kryddbrauð er mjúkt brauð sem auðvelt er að nota til að hreinsa leifar af góðri sósu af disk eða hvítlauksmjöri með humar svo ekkert fari til spillisAðferð
Þurrefnunum blandað saman, kryddjurtirnar saxaðar smátt niður, helmingurinn af fetaostinum mulinn niður og blandað við, rjómaosturinn og mjólkin sett saman við að síðastu og svo hnoðað vel saman.Mótað í bakka og látið standa í 30 mín. Bætið við restinni af fetaostinum og olíunni af ostinum líka. Bakað á 180°c í 15-25 mín eða þar til brauðið verður ljósbrúnt að lit. Hentar vel í tapas eða með humar.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/984/
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira






















