Appelsínu og rúsínu-balsamico

Hráefni
» 2 msk shallotlaukur (fínt saxaður)
» 1 msk Rúsínur
» ½ appelsína (skorin í litla bita)
» 4 msk balsamik edik
» 1 tsk dijonsinnep
» 1 msk hunang
» 1 msk furuhnetur
» 4 msk ólívuolía
» Salt og pipar

Fyrir 4 - 5

Sætsósa með ferskum appelsínukeim

Aðferð

Mýkjið laukinn, rúsínurnar og furuhneturnar í potti með 1 msk af olíunni þar til laukurinn er orðin glær. Þá er balsamik edikinu, sinnepinu og hunanginu bætt út í, hrært vel saman og látið sjóða í 1 mínútu. Kælið og bætið svo olíunni og appelsínubitunum útí og smakkað loks til með salti og pipar.

Þessi uppskrift er notuð í Appelsínugrafinn lambavöðvi

Meðlæti

Appelsínugrafinn lambavöðvi

Hráefni
» 300 g lambavöðvi (hryggvöðvi eða lærvöðvi)
» (þurrblandan 1)
» 3msk Salt
» 1 msk Sykur
» 1 msk púðursykur
» 1 tsk Rósapipar
» 1 tsk Timian
» 1 tsk Rósmarín
» 2 msk Koníak/grand marnier líkjör
» ½stk Apelsínubörkur
» (ferskblanda 2)
» 1 tsk timian(saxað)
» 1 tsk rósmarín(fínt saxað)
» Svartur pipar úr kvörn

Fyrir 4 - 5 | skoða myndskeið

Ferskur forréttur sem gott er að eiga þegar gesti ber að garði

Aðferð

Fituhreinsið lambavöðvann eins og hægt er og setjið í skál. Blandið þurrkryddi saman ásamt berkinum og stráið vel undir og yfir vöðvann , hellið þá líkjörnum yfir og plastið skálina, látið standa í 8 tíma og skolið létt undir köldu vatni , þerrið á pappír og veltið vöðvanum í fersku kryddjurtunum ásamt nýmuldum piparnum. Þá er vöðvinn settur í plast og geymdur inni í kæli áður en hann er skorinn niður í sneiðar.

Sítrus og dill-grafinn lax með graflaxsósu

None
17.4.2007 Graflax er lostæti sem flestir þekkja og hver veiðimaður ætti að grafa sinn fisk sjálfur. Hér er auðveld og skemmtileg aðferð til að galdra fram þennan létta og ljúffenga rétt. Meira »

Heilsteiktur kjúklingur á dós með sætum chili gljáa

None
3.7.2007 Það er mjög vinsælt erlendis að troða bjórdós upp í óæðri endann á kjúklingi og grilla á útigrilli, Því þá situr kjúklingurinn á hásæti sýnu og grillast jafnt og gufan úr dósinni gerir kjúklinginn að mjúku lostæti, en hér er skemmtileg fjölskylduvæn útgáfa Meira »

Sveppir og kartöflusmælki á grill spjóti

None
9.7.2007 það er hægt að setja margt á grill spjót tildæmis meðlæti eins og kartöflur og sveppi  Meira »

Grillhátíð krakkanna

None
18.9.2007 Ekki má gleyma yngstu kynslóðinni. Grill er hægt að nota til að galdra fram ýmsar veislur, til dæmis afmæli upp í sumarbústað. Meira »

Kryddbrauð með fetaosti

None
16.5.2007 Kryddbrauð er mjúkt brauð sem auðvelt er að nota til að hreinsa leifar af góðri sósu af disk eða hvítlauksmjöri með humar svo ekkert fari til spillis Meira »

Ofnbakaður stóri Dímon með brauðstöngum

None
15.11.2007 Skemmtilegur partýréttur fyrir öll tilefni.   Meira »

Lax með mangósalsa og ferskri jógúrtsósu

None
28.3.2007 Lax er mjög hollur, fæst í fiskborðum stórmarkaðanna allt árið og er ekki of dýr. Því er tilvalið að bera hann fram með fersku suðrænu hráefni hvenær árs sem er til að fá sumar í magann. Meira »

Auðvelt og skemmtilegt konfekt

None
7.11.2007 Hér gerum við skemmtilegt konfekt að franskri fyrirmynd Valrhona skólans í Rónardalnum.  Meira »

Skemmtileg ostaþrenna: mangó-chutney og kóríander, ólívuolía og hvítlaukur, hindber og hunang

None
4.4.2007 Það er ekki mikið sem slær út volgan ost á stökku kexi. Hér er góð tilbreyting við gamla ostabakkann ásamt nýjum mildum geitaosti sem er nýr fyrir Íslendingum en fastur þáttur í lífi ostagæðinga erlendis. Meira »

Sósa fyrir Foie gras (Franska andalifur) að hætti Sjávarkjallarans

None
19.6.2007 Þetta er sælkerasósa sem skemmtilegt er að prófa  Meira »

Stelpunesti Maríu Lívar

None
14.3.2007 Átta ára jazzballettstelpa velur sér nesti sem fulltrúi ungu kynslóðarinar.  Meira »

Grillkartöflu morgunmatur

None
29.8.2007 Að nota bökunarkartöflur frá veislu gærdagsins er hrein snilld og mjög fljótlegt.  Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar