Meistaramatur
|
mbl
|
6. júní
Ofnbakaðar spergil- og camenbertfylltar rauðspretturúllur
- Hráefni
- » Ca.800 g rauðspretta (flökuð, roðflétt og beinhreinsuð) biðjið fisksalan um að gera þetta fyrir ykkur.
- » 8 ferskir sperglar (hægt að nota úr dós)
- » 8 sneiðar Camenbert (ca. 250 g)
- » 1 msk sítrónusafi
- » 1 hvítlauksrif (gróft saxað)
- » 1/3 laukur (gróft saxaður)
- » Stilkur Estragon eða annað gott kryddi eins og timian, rósmarín eða dill
- » 1 dl hvítvín (má sleppa, en þá þarf vatn í staðinn)
- » Salt og pipar
Fyrir 4 - 5
Mjúkur camenbert passar vel með mildri áferð rauðsprettunar og ferskum spergliAðferð
Byrjið á því að sjóða spergilinn í söltu vatni í ca. 2 mín og setjið hann síðan í kalt vatn og þerrið loks á pappír. Leggið rauðsprettuna á bretti með roðhliðina upp (samt er ekkert roð) og létt sláið á flakið þannig að það fletjist aðeins út. Stráið salti og pipar yfir, setjið einn spergil ásamt einni sneið af camenbert ofaná flakið og rúllið upp í snyrtilega rúllu. Leggið rúllurnar í eldfast mót og hellið hvítvíninu eða vatninu yfir ásamt hvítlauknum, lauknum, sítrónusafanum og kryddstilkunum. Saltið og piprið yfir rúllurnar og setjið álpappír yfir formið. Bakið inní 200°C heitum ofni í ca. 20 mín, eða þangað til fiskurinn er orðinn eldaður (fer eftir ofninum hversu langan tíma þarf).
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/991/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira





















