Kartöflu og sveppa-gratín

Hráefni
» 400 g (soðnar , skrældar og sneiddar gróft)
» 200 g flúðasveppir(fínt sneiddir) hægt að nota hvaða uppáhaldssveppi
» ½ laukur(fínt saxaður)
» 1 geiri hvítlauksgeiri(fínt saxaður)
» 150 g léttsmurostur með villisveppum
» 2 dl mjólk
» 2 msk steinselja (söxuð, má sleppa)
» Salt og pipar
» 50 g rifinn ostur(einhver góður eftir smekk)

Fyrir 4 - 6

Sveppir og Kartöflur það hljómar alltaf vel er það ekki?

Aðferð

Hitið sveppaostinn og mjólkina í örbylgjunni þar til bráðnar, steikið laukinn og sveppina ásamt hvítlauknum í smá olíu á pönnu þar til að laukurinn er orðin mjúkur, hellið svepparjómanum útá ásamt steinseljunni og smakkað til með salti og pipar (ekki gleyma því að kartöflur þurfa soldið mikla kryddun) hellið þessu í eldfastmót og stráið rifna ostinum yfir og bakið í 200°c heitum ofni í ca.20 mín eða þar til að osturinn er farinn að gullinbrúnast.

Þessi uppskrift er notuð í Ofnbakaðar spergil- og camenbertfylltar rauðspretturúllur

Meðlæti

Ofnbakaðar spergil- og camenbertfylltar rauðspretturúllur

Hráefni
» Ca.800 g rauðspretta (flökuð, roðflétt og beinhreinsuð) biðjið fisksalan um að gera þetta fyrir ykkur.
» 8 ferskir sperglar (hægt að nota úr dós)
» 8 sneiðar Camenbert (ca. 250 g)
» 1 msk sítrónusafi
» 1 hvítlauksrif (gróft saxað)
» 1/3 laukur (gróft saxaður)
» Stilkur Estragon eða annað gott kryddi eins og timian, rósmarín eða dill
» 1 dl hvítvín (má sleppa, en þá þarf vatn í staðinn)
» Salt og pipar

Fyrir 4 - 5 | skoða myndskeið

Mjúkur camenbert passar vel með mildri áferð rauðsprettunar og ferskum spergli

Aðferð

Byrjið á því að sjóða spergilinn í söltu vatni í ca. 2 mín og setjið hann síðan í kalt vatn og þerrið loks á pappír. Leggið rauðsprettuna á bretti með roðhliðina upp (samt er ekkert roð) og létt sláið á flakið þannig að það fletjist aðeins út. Stráið salti og pipar yfir, setjið einn spergil ásamt einni sneið af camenbert ofaná flakið og rúllið upp í snyrtilega rúllu. Leggið rúllurnar í eldfast mót og hellið hvítvíninu eða vatninu yfir ásamt hvítlauknum, lauknum, sítrónusafanum og kryddstilkunum. Saltið og piprið yfir rúllurnar og setjið álpappír yfir formið. Bakið inní 200°C heitum ofni í ca. 20 mín, eða þangað til fiskurinn er orðinn eldaður (fer eftir ofninum hversu langan tíma þarf).

Suðrænn og seiðandi skötuselur með ferskum brögðum

None
2.1.2008 Þessi réttur er ættaður frá Los Capos í Mexico, hér er hægt að elda sér til hita með því að borða framandi en ferskan rétt á köldum íslenskum vetrarkvöldum Meira »

Spínat- og kotasælufylltar torilla kökur með tómatsalsa

None
28.3.2007 Hægt er að sameina matreiðsluhefðir nokkurra landa til að gera skemmtilegan rétt. Til að gera hollan skyndibita er tekin fylling ættuð frá Ítalíu og sett inn í suður-amerískar pönnukökur með skemmtilegum árangri. Meira »

Fylltur lambahryggur á beini með apríkósum, fetaosti, furuhnetum og cumminkryddi.

None
9.4.2007 Margir hafa lent í því að lambalundirnar, sem eru einn besti vöðvinn á hryggnum, vilja verða ofeldaðar og þurrar þegar hryggurinn er tilbúinn . Séu þær hinsvegar teknar af og notaðar til fyllingar ásamt apríkósum, furuhnetum og cumin kryddi, ásamt mjúkum fetaosti, þá er allur hryggurinn tilbúinn á sama tíma og kjötið safaríkt eftir því. Meira »

Steiktur saltfiskur með brúnuðu kryddsmjöri að hætti Eyþórs

None
8.5.2007 Landliðsmaðurinn Eyþór Rúnarsson yfirmatreiðslumaður á veitingarstað Sigga Hall sýnir okkur hvernig best er að steikja saltfisk að spænskum hætti Meira »

Fylltar tortillakökur með skinku og ost, fersku epli og krakkadrykk

None
14.3.2007 Viljum byrja á að kynna fyrir börnum hollan íslenskan nútímamat í bland við íslenska osta og aðrar mjólkurafurðir, kjöt, fisk og framandi ávexti og grænmeti. Þá hafa börnin kraft til að mæta framtíðinni með íslenskan mat sem eldsneyti en ekki skyndibitamat að erlendri fyrirmynd! Meira »

Mangóklessa

6.3.2007 Gott að borða!  Meira »

Ofur einföld súkkulaðimús að hætti Karls Viggo landsliðsbakara

None
4.12.2007 Einfaldara er ekki hægt að gera lúxus súkkulaðimús á nokkrum mínútum  Meira »

Sósa fyrir Foie gras (Franska andalifur) að hætti Sjávarkjallarans

None
19.6.2007 Þetta er sælkerasósa sem skemmtilegt er að prófa  Meira »

Las Vegas steik með bernaisesósu

None
20.11.2007 Leitin að bestu steikinni endaði í Las vegas! Hún er hvítlauksristuð nauta T-bein steik, balsamic ediks gljáð, framreidd með bernaisesósu og stemmningu einnar skemmtilegustu borgar heims. Meira »

Sashimiplatti

None
14.2.2008 Sashimi er þunnt skorinn fiskur og borðaður með soyasósu ,pikkluðu engiferi og wasabi. Best er að hafa alveg splunkunýjan fisk þar sem fiskurinn er borðaður hrár, einnig er hægt að vera með skelfisk eins og rækjur, humar, hörpuskel svo eitthvað sé nefnt. Meira »

Kartöflusalat með blaðlauk, spergil og papriku

None
2.5.2007 Þetta er kartöflusalat sem fólk ætti að þekkja og klikkar ekki  Meira »

Graflaxsósa

None
17.4.2007 Allir þekkja graflaxsósuna en kunna allir að laga hana?  Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar