Meistaramatur
|
mbl
|
12. júní
Fennelsalat að hætti Sigga Gísla
- Hráefni
- » 1 stk Fennel (fingurkál)
- » 1 stk vel þroskaður tómatur
- » ¼ stk agúrka
- » Nokkrar grænar baunir, létt soðnar (hægt að fá frosið forsoðið)
- » Góð ólífuolía
- » 1/2 stk sítróna
- » 1 lúka söxuð hundasúra
- » Salt og pipar
Fyrir 4
Fennel hefur anís bragð og er því sérstaklega gott með fiskAðferð
Fennellinn er skorinn í mjög þunnar sneiðar. Tómatarnir skornir í litla bita ásamt agúrkunni. Öllu er svo blandað saman og kryddað til með olífuolíunni, salti og sítrónu.Látið standa í um það bil 10 mínútur áður en það er gefið til að fennellinn nái að brotna aðeins niður.
Þessi uppskrift er notuð í Smálúða með fennelsalati og hægsoðnu eggi að hætti Sigga Gísla
Meðlæti
Smálúða með fennelsalati og hægsoðnu eggi að hætti Sigga Gísla
- Hráefni
- » 4stk Smálúðuflök
- » ½ búnt Kerfill
- » ½ búnt Steinselja
- » ½ búnt Hundasúrur
- » ½ bolli ólífuolía
- » 1 stk sítróna
- » Salt og sykur
- » 4 stk egg
- » Sjóðandi vatn
- » Sítrónusafi eða edik
Fyrir 4 | skoða myndskeið
Smálúða er einn besti fiskur okkar Íslendinga og hér er hann matreiddur á skemmtilegan háttAðferð
Smálúðuflakið er hreinsað og roðrifið. Svo er það stráð létt með salti og sykri. Jurtirnar og ólífuolían er unnið saman í matvinnsluvél þar til það er einskona mauk og er svo makað yfir lúðuna. Skallið af sítrónunnni er rifið yfir flakið og örlítð af safan kreist yfir. Þetta er látið standa á kæli í c.a 20 mín. Þá er lúðan elduð í ofni við 160°C í um það bil 1-2 mínútur hún á ekki að eldast alveg í gegn.
Hægsoðið egg
Setjið c.a 2 msk af sítrónusafa á 1 ltr af vatni og brjótið eggið varlega útí sjóðandi vatnið (vatnið má ekki bullsjóða annars fer eggið út um allt). Látið eggið vera í vatninu í 4 mínútur. Takið það þá varlega uppúr svo það springi ekki. Kryddið með salti og gefið með lúðunni sem einskonar sósu.
Gott er að gefa með réttinum brauðteninga,, til dæmis úr maltbrauði eða rúgbrauði.
Slóð á uppskrift: http://mbl.is/smartland/matur/u/994/
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira





















