foie gras allt árið um kring en á jólunum er hún nánast ómissandi á veisluborðinu. Foie Gras er lifur úr gæs eða önd " />

Frönsk jól - foie gras

Frönsk jól - foie gras

Frakkar borða vissulega foie gras allt árið um kring en á jólunum er hún nánast ómissandi á veisluborðinu. Foie Gras er lifur úr gæs eða önd sem í flestum tilvikum er seld niðursoðin þótt í Frakklandi megi einnig fá hana ferska eða frosna.

Þegar keypt er niðursoðin foie gras þarf auðvitað fyrst að ákveða hvort að menn vilji gæs (oie) eða önd (canard). Gæsalifrin er mýkri en öndin yfirleitt kröftugri. Þá þarf að velja um hvers konar afurð maður vill. Ódýrasta útgáfan af foie gras - þótt hún sé vissulega ekki ódýr nema hlutfallslega - er eins konar kæfa þar sem lifrin er hökkuð niður. Besta lifrln er hins vegar þegar lifrin er seld heil (foie gras entier) eða í bútum úr heilli lifur. Þannig lifur er fáanleg frá Ried í Alsace, afbragðsframleiðanda en aðferðin sem notuð er í Alsace er nokkuð ólík þeirri sem algeng er í suðvestur-Frakklandi, þar sem einnig er mikil framleiðsla á foie gras. Andalifrin frá Ried er bökuð í kryddblöndu og geymist hún í nokkra daga eftir að dósin er opnuð.

Fæst hún m.a. í Búrinu í Nóatúni, Mosfellsbakarí, Sandholtsbakarí og Ostabúðinni á Skólavörðustíg.

Það er hægt að bera fram foie gras með ýmsum hætti. Það þarf hins vegar ekki að hafa mikið fyrir henni og best að leyfa henni að njóta sín sem mest upp á eigin spýtur. Gott er að hafa ristað brauð með og gróft sjávarsalt (Maldon eða fleur du sel) og nýmulinn pipar.  Þá er ágætt að hafa á diskinum stökkt salat með skarpri vinaigrette.

Vínin frá Alsace falla afskaplega vel að foie gras og þá sérstaklega vín úr þrúgunum Pinot Gris og Gewurztraminer. Eftir því sem vínin eru betri eiga þau betur við og ekki er leiðinlegt að bjóða upp á sætan vendanges tardives með foie gras.

 

Sjá einnig vinotek.is



Litskrúðugir vordrykkir

Litskrúðugir vordrykkir
4.4. Það er vor í lofti og af því tilefni fengum við Aðalstein Jóhannesson til að setja saman nokkra sumarlega drykki í öllum regnbogans litum en hann er menntaður sem þjónn og vínþjónn og hefur komið víða við bæði hér heima og í Noregi. Meira »

Drykkir Jóa í Tapashúsinu

Drykkir Jóa í Tapashúsinu
26.2. Tapashúsið er einn af nýjustu veitingastöðunum í Reykjavík og býður upp á suðræna stemmningu. Jóhann Gunnar Baldvinsson setti saman nokkra spennandi drykki fyrir okkur. Bols Cheesecake er drykkur þar sem jógúrtlíkjör ásamt jarðarberjalíkjör mynda samsetningu sem ótrúlegt nokk minna skemmtilega á góða ostaköku. Svipuð hráefni eru notuð í Bols Raspberry Delight en útkoman þó allt önnur, svolítil smoothie-tilfinning yfir drykknum. Jógúrtlíkjörinn kemur einnig við sögu í Apple Cream Delight þar sem limesafi og eplalíkjör gefa góðan ferskleika. Meira »

Paleo - steinaldarfæði hellisbúans

Paleo - steinaldarfæði hellisbúans
10.1. Það er fastur liður um áramót að menn strengi fögur fyrirheit um framtíðina og oftar en ekki tengjast þau hollu mataræði og aukinni hreyfingu. Ekkert nema gott um það að segja. Meira »

Freyðandi áramót

Freyðandi áramót
29.12. Árið 2011 er að renna í aldanna skeið og eflaust munu margir skjóta ekki bara flugeldum heldur einnig kamapvínstöppum á loft af því tilefni. Meira »

Jólaákavíti í þrjátíu ár

Jólaákavíti í þrjátíu ár
21.12. Þegar fer að líða að jólum bíða Danir spenntir eftir því að jólaákavítið frá Aalborg komi á markaðinn en þar í landi er rík hefð fyrir því að bera fram ískaldan snafs með julefrokost-borðinu. Danir drekka hvorki meira né minna en hálfa milljón lítra af snafsi í desember, það eru ansi mörg staup á hvern Dana. Meira »

Púrtvín og ostar

Púrtvín og ostar
19.12. Það tengja margir osta og rauðvín ósjálfrátt saman. Staðreyndin er hins vegar sú að oft henta önnur vín betur með ostum en rauðvín. Í mörgum tilvikum eru hvítvín besti kosturinn og púrtvín geta sömuleiðis verið frábær kostur með góðum ostum. Meira »

Jólamatarmarkaður Búrsins á laugardag

Jólamatarmarkaður Búrsins á laugardag
7.12. Einstakur jólamatarmarkaður verður haldinn laugardaginn 10. desember kl 12-16 fyrir utan verslunina Búrið í Nóatúni 17. Þar verður komið upp risastóru tjaldi þar sem á annan tug framleiðenda og bænda munu kynna afurðir sínar bjóða til sölu. Öllum gestum á jólamatarmarkaðinn verður að sjálfsögðu boðið upp á sjóðandi heitt súkkulaði með rjóma. Meira »

Veisludrykkir Valtýs

Veisludrykkir Valtýs
3.12. Valtýr Bergman á Fiskmarkaðnum er einn reynslumesti barþjónn landsins og hefur oft verið sigursæll í kokteilakeppnum. Við fengum hann til að setja saman nokkra góða veisludrykki fyrir okkur. Meira »

Leyndarmál villta kokksins

Leyndarmál villta kokksins
29.11. Íslenska villibráðin er stórfenglegt hráefni en það vefst fyrir mörgum hvernig eigi að fara með það. Í nýrri bók Úlfars Finnbjörnssonar matreiðslumeistara sem ber heitið Stóra bókin um villibráð er hægt að finna upplýsingar um nær allt er snýr að villibráð. Hvernig eigi að verka hana og elda hana. Mikill fengur er af þessu glæsilega riti en segja má að Úlfar hafi helgað stóran hluta af starfsævi sinni villibráðinni. Meira »

Kalkúnahátíðin mikla

Kalkúnahátíðin mikla
26.11. Þakkargjörðarhátíðin eða Thanksgiving er einn helsti hátíðisdagur Norður-Ameríku og skipar þar svipaðan sess og aðfangadagur hjá okkur. Þetta er helgin sem fjölskyldur sameinast þó svo að fjölskyldumeðlimirnir búi í öðrum ríkjum. Meira »

Trivento-helgi á Argentínu

Trivento-helgi á Argentínu
25.10. Francisco Bragoni, sem er sérstakur “vínsendiherra” argentínska vínhússins Trivento verður hér á landi dagana 3. -6. nóvember.  Af því tilefni verða m.a. Trivento-dagar á veitingahúsinu Argentínu. Meira »

Vinsæll vínkjallari

Vinsæll vínkjallari
17.10. Það er alltaf gaman fyrir vínáhugamenn að skoða góða vínkjallara og ekkert veitingahús á Íslandi státar af eins fjölbreyttum og góðum vínkjallara á Hótel Holt. Þar er að finna mörg af bestu og þekktustu vínum heims, ekki síst hinum frönsku. Fyrir nokkru byrjaði Holtið að opna vínkjallarann fyrir hópa sem þess óska og hefur það notið sívaxandi vinsælda að byrja kvöldið á fordrykk í vínkjallaranum og þá jafnvel algengt að gestir velji sér þar vínið til að hafa síðar með kvöldverðinum. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar