Er bjór og ostur málið?

Er bjór og ostur málið?

Rauðvín og ostar er samsetning sem nær allir kannast við og rauðvín er það fyrsta sem mörgum dettur í hug þegar ostar eru nefndar. Samt er það svo að með mörgum ostum eiga hvítvín betur við en rauðvín. Og svo er það bjórin. Þótt að sú pörun hljómi ólíklega í eyrum margra þá er hægt að færa sterk rök fyrir því að bjór og ostar eigi ef eitthvað er oft betur saman en vín og ostar.

Þegar maður fer að velta þessu fyrir sér hljómar þetta hins vegar ekki svo ósennilega. Bæði bjórin og osturinn eiga rætur sínar að rekja til sömu akranna. Sumt fer í bjórinn en annað í beljuna. Og í báðum tilvikum þarf að gerja hráefnið áður en það nær sinni endanlegu mynd.

Í Búrinu í Nóatúni er boðið upp á osta- og bjórkvöld þar sem þau Eirný Sigurðardóttir í Búrinu og Valgeir Valgeirsson bruggmeistari í Ölvisholti para saman osta og vín á ótrúlegan hátt. Það var afskaplega fróðlegt og ekki síst skemmtilegt að verja kvöldstund í þessar pælingar enda eru þau Eirný og Valgeir bæði snillingar á sínu sviði.

Ekki spillir fyrir að bjórarnir frá Ölvisholti eru á algjörum heimsmælikvarða og þurftu ekkert að skammast sín við hliðina á þessum fínu, evrópsku ostum.

Við byrjuðum á því að smakka Freyju, sem er "kvenlegasti" bjórinn þeirra í Ölvisholti, bruggaður í anda belgísku Witbier eða hveitibjóranna, bragðbættur með appelsínu og kóríander. Hann reyndist vera mjög ostvænn og small að jafnt Brie Maxim's de Paris og Chevre Cendre, geitaosti frá Loire. Hvítmygluostar á borð við Brie eru erfiðir þegar vínið er annars vegar en Brie og Freyja voru eins og samrýmd hjón. Sömuleiðis dró Freyja vel fram mýktina í geitaostinum og hann á móti ýtti undir ferskleikann í bjórnum.

Premium lager bjórinn skjálfti þurfti að takast á við Grana Padano og Pecorinu il Martano Nero frá Ítalíu. Hann komst þokkalega frá því en stundum gætti ákveðin ójafnvægis. Að mínu mati er Skjálfti meira bjór sem kallar á matarmikla kjötrétti. (Schweinebraten oder Wurst jemand?) og jafnt Pecorino sem Grana eru mjög vínvænir ostar. Þetta var sem sagt samsetning sem gekk upp en ég var ekki reiðubúinn að fallast á að bjórinn hefði vinning á víninu.

Móri var næstur en hann flokkast sem rautt öl og einn besti bjór sem bruggaður hefur verið hér á landi. Á veitingahúsinu Dill hefur honum t.d. stundum verið skotið inn á milli vínanna í matseðlinum og hér þurfti hann að mæta hinum norska Jarlsberg og hollenska Ouwe Jongens, sem hann gerði af stakri prýði. Eðlilegar og rökréttar samsetningar og dró sá síðarnefndi fram súkkulaðitóna í bjórnum sem ég hafði ekki annars fundið fyrir að væru til staðar.

Hinn kolsvarti Lava-bjór var síðastur en hann er mikill um sig, 9,4% að styrk úr dökkristuðu malti. Svakalegur bjór sem fékk það erfiða verkefni að takast á við grænmygluostinn Bleu d'Auvergne. Fæst vín ráða við slíka osta og best er að para þeim við vönduð sætvín á borð við Sauternes frá Bordeaux, Selection des Grand Nobles frá Alsace eða jafnvel Vintage Port frá Portúgal. Lavan var hins vegar ekki í vandræðum með grænmygluna og osturinn og bjórinn ýttu á frábæran hátt undir sérkenni hvor annars. Að sama skapi voru Saint-Nectare, annar kúamjólkurostur frá Auverne, afskaplega samrýmdir.

Sjá einnig vinotek.is



Paleo - steinaldarfæði hellisbúans

Paleo - steinaldarfæði hellisbúans
10.1. Það er fastur liður um áramót að menn strengi fögur fyrirheit um framtíðina og oftar en ekki tengjast þau hollu mataræði og aukinni hreyfingu. Ekkert nema gott um það að segja. Meira »

Freyðandi áramót

Freyðandi áramót
29.12. Árið 2011 er að renna í aldanna skeið og eflaust munu margir skjóta ekki bara flugeldum heldur einnig kamapvínstöppum á loft af því tilefni. Meira »

Jólaákavíti í þrjátíu ár

Jólaákavíti í þrjátíu ár
21.12. Þegar fer að líða að jólum bíða Danir spenntir eftir því að jólaákavítið frá Aalborg komi á markaðinn en þar í landi er rík hefð fyrir því að bera fram ískaldan snafs með julefrokost-borðinu. Danir drekka hvorki meira né minna en hálfa milljón lítra af snafsi í desember, það eru ansi mörg staup á hvern Dana. Meira »

Púrtvín og ostar

Púrtvín og ostar
19.12. Það tengja margir osta og rauðvín ósjálfrátt saman. Staðreyndin er hins vegar sú að oft henta önnur vín betur með ostum en rauðvín. Í mörgum tilvikum eru hvítvín besti kosturinn og púrtvín geta sömuleiðis verið frábær kostur með góðum ostum. Meira »

Frönsk jól - foie gras

Frönsk jól - foie gras
18.12. Frakkar borða vissulega foie gras allt árið um kring en á jólunum er hún nánast ómissandi á veisluborðinu. Foie Gras er lifur úr gæs eða önd sem í flestum tilvikum er seld niðursoðin þótt í Frakklandi megi einnig fá hana ferska eða frosna. Meira »

Jólamatarmarkaður Búrsins á laugardag

Jólamatarmarkaður Búrsins á laugardag
7.12. Einstakur jólamatarmarkaður verður haldinn laugardaginn 10. desember kl 12-16 fyrir utan verslunina Búrið í Nóatúni 17. Þar verður komið upp risastóru tjaldi þar sem á annan tug framleiðenda og bænda munu kynna afurðir sínar bjóða til sölu. Öllum gestum á jólamatarmarkaðinn verður að sjálfsögðu boðið upp á sjóðandi heitt súkkulaði með rjóma. Meira »

Veisludrykkir Valtýs

Veisludrykkir Valtýs
3.12. Valtýr Bergman á Fiskmarkaðnum er einn reynslumesti barþjónn landsins og hefur oft verið sigursæll í kokteilakeppnum. Við fengum hann til að setja saman nokkra góða veisludrykki fyrir okkur. Meira »

Leyndarmál villta kokksins

Leyndarmál villta kokksins
29.11. Íslenska villibráðin er stórfenglegt hráefni en það vefst fyrir mörgum hvernig eigi að fara með það. Í nýrri bók Úlfars Finnbjörnssonar matreiðslumeistara sem ber heitið Stóra bókin um villibráð er hægt að finna upplýsingar um nær allt er snýr að villibráð. Hvernig eigi að verka hana og elda hana. Mikill fengur er af þessu glæsilega riti en segja má að Úlfar hafi helgað stóran hluta af starfsævi sinni villibráðinni. Meira »

Kalkúnahátíðin mikla

Kalkúnahátíðin mikla
26.11. Þakkargjörðarhátíðin eða Thanksgiving er einn helsti hátíðisdagur Norður-Ameríku og skipar þar svipaðan sess og aðfangadagur hjá okkur. Þetta er helgin sem fjölskyldur sameinast þó svo að fjölskyldumeðlimirnir búi í öðrum ríkjum. Meira »

Trivento-helgi á Argentínu

Trivento-helgi á Argentínu
25.10. Francisco Bragoni, sem er sérstakur “vínsendiherra” argentínska vínhússins Trivento verður hér á landi dagana 3. -6. nóvember.  Af því tilefni verða m.a. Trivento-dagar á veitingahúsinu Argentínu. Meira »

Vinsæll vínkjallari

Vinsæll vínkjallari
17.10. Það er alltaf gaman fyrir vínáhugamenn að skoða góða vínkjallara og ekkert veitingahús á Íslandi státar af eins fjölbreyttum og góðum vínkjallara á Hótel Holt. Þar er að finna mörg af bestu og þekktustu vínum heims, ekki síst hinum frönsku. Fyrir nokkru byrjaði Holtið að opna vínkjallarann fyrir hópa sem þess óska og hefur það notið sívaxandi vinsælda að byrja kvöldið á fordrykk í vínkjallaranum og þá jafnvel algengt að gestir velji sér þar vínið til að hafa síðar með kvöldverðinum. Meira »

Kokteilar á Cafe París

Kokteilar á Cafe París
6.10. Við fengum Orra Pál Vilhjálmsson barþjón á Cafe París til að setja saman nokkra drykki fyrir okkur. Hann notar mikið sænska drykkinn Xanté sem hefur notið mikilla vinsælda á börum í Evrópu en þessi líkjör er blanda úr frönsku koníaki og belgískum eplum. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar