Villibráðin í öndvegi

Villibráðin í öndvegi

Það er villibráðartíð núna. Kjötvinnslumenn eru á fullu við að úrbeina hreindýrin og fréttir berast af góðri veiði á fuglum víða um land. Í Perlunni er rík hefð fyrir hlaðborðum og þar hefur undanfarnar vikur verið boðið upp á hið árlega villibráðarhlaðborð þar sem gefst tækifæri til að bragða á margvíslegri villibráð jafnt innlendri sem erlendri.

Margir elda hins vegar sjaldan villibráð heima þótt þetta sé með einhverju besta íslenska hráefni sem hægt er að fá á Íslandi. Sumir eru hikandi vegna þess að þeir eru óvanir en stundum eru praktískar ástæður fyrir því á borð við þær að ekki eru skotveiðimenn í nánustu fjölskyldunni. Það eru því margir sem snæða aðallega villibráð á veitingahúsum og er það ein skýringin á vinsældum villibráðahlaðborða.

Það er líka sterk hlaðborðsmenning á Íslandi og virðast þau alltaf jafnvinsæl ekki síst þegar til dæmis vinnustaðahópar taka sig saman og fara út að borða. Þetta form hentar vel fyrir slík og eftir því sem maður heyrir úr veitingahúsageiranum eru til dæmis pantanir á jólahlaðborðin síst minni og oft meiri en þær hafa verið undanfarin ár.

Elmar Kristjánsson, yfirmatreiðslumaður í Perlunni, segir þá stefnu hafa verið tekna að hafa ákveðna fjölbreytni í boði til viðbótar við villibráðina, enda sé það oft þannig þegar hópar komi eða fjölskyldur að einhverjir í hópnum vilji eiga kost á öðru en einungis villibráð. "Við bjóðum því upp á sitt lítið af hvoru, mikið af fiskréttum og grænmeti en einnig rétti á borð við sushi. Við þurfum að hugsa um þarfir svo margra og reynum að koma til móts þær."

Einnig sé reynt að hafa mikla fjölbreytni í sjálfri villibráðinni og bjóða upp á hreindýr, villigölt, dúfu og fasana, svo dæmi séu nefnd. Þá sé stöðugt ríkari áhersla á að hafa sem mest af hráefninu íslenskt og nú séu til dæmis allir ostarnir sem boðið sé upp á íslenskir.

Elmar segir marga bændur vera farna að huga að því að bjóða upp á nýjar og spennandi vörur, sem sé jákvætt því innfluttar vörur verði stöðugt dýrari fyrir Íslendinga. "Það er líka mikið af villibráð á markaðinum núna, ekki síst gæs og hreindýr, og greinilegt að stofnarnir eru sterkir. "

Hann segir útlendinga sýna íslensku villibráðinni mikinn áhuga og ekki síst komi stórir hópar útlendinga í miðri viku til að bragða á henni.

"Aðsóknin er svipuð og hún hefur verið og ef eitthvað er þá er það að aukast að barnafólk komi með alla fjölskylduna. Ef menn vilja fá sem mest fyrir peninginn þá eru hlaðborðin auðvitað málið."

Sjá einnig vinotek.is



Paleo - steinaldarfæði hellisbúans

Paleo - steinaldarfæði hellisbúans
10.1. Það er fastur liður um áramót að menn strengi fögur fyrirheit um framtíðina og oftar en ekki tengjast þau hollu mataræði og aukinni hreyfingu. Ekkert nema gott um það að segja. Meira »

Freyðandi áramót

Freyðandi áramót
29.12. Árið 2011 er að renna í aldanna skeið og eflaust munu margir skjóta ekki bara flugeldum heldur einnig kamapvínstöppum á loft af því tilefni. Meira »

Jólaákavíti í þrjátíu ár

Jólaákavíti í þrjátíu ár
21.12. Þegar fer að líða að jólum bíða Danir spenntir eftir því að jólaákavítið frá Aalborg komi á markaðinn en þar í landi er rík hefð fyrir því að bera fram ískaldan snafs með julefrokost-borðinu. Danir drekka hvorki meira né minna en hálfa milljón lítra af snafsi í desember, það eru ansi mörg staup á hvern Dana. Meira »

Púrtvín og ostar

Púrtvín og ostar
19.12. Það tengja margir osta og rauðvín ósjálfrátt saman. Staðreyndin er hins vegar sú að oft henta önnur vín betur með ostum en rauðvín. Í mörgum tilvikum eru hvítvín besti kosturinn og púrtvín geta sömuleiðis verið frábær kostur með góðum ostum. Meira »

Frönsk jól - foie gras

Frönsk jól - foie gras
18.12. Frakkar borða vissulega foie gras allt árið um kring en á jólunum er hún nánast ómissandi á veisluborðinu. Foie Gras er lifur úr gæs eða önd sem í flestum tilvikum er seld niðursoðin þótt í Frakklandi megi einnig fá hana ferska eða frosna. Meira »

Jólamatarmarkaður Búrsins á laugardag

Jólamatarmarkaður Búrsins á laugardag
7.12. Einstakur jólamatarmarkaður verður haldinn laugardaginn 10. desember kl 12-16 fyrir utan verslunina Búrið í Nóatúni 17. Þar verður komið upp risastóru tjaldi þar sem á annan tug framleiðenda og bænda munu kynna afurðir sínar bjóða til sölu. Öllum gestum á jólamatarmarkaðinn verður að sjálfsögðu boðið upp á sjóðandi heitt súkkulaði með rjóma. Meira »

Veisludrykkir Valtýs

Veisludrykkir Valtýs
3.12. Valtýr Bergman á Fiskmarkaðnum er einn reynslumesti barþjónn landsins og hefur oft verið sigursæll í kokteilakeppnum. Við fengum hann til að setja saman nokkra góða veisludrykki fyrir okkur. Meira »

Leyndarmál villta kokksins

Leyndarmál villta kokksins
29.11. Íslenska villibráðin er stórfenglegt hráefni en það vefst fyrir mörgum hvernig eigi að fara með það. Í nýrri bók Úlfars Finnbjörnssonar matreiðslumeistara sem ber heitið Stóra bókin um villibráð er hægt að finna upplýsingar um nær allt er snýr að villibráð. Hvernig eigi að verka hana og elda hana. Mikill fengur er af þessu glæsilega riti en segja má að Úlfar hafi helgað stóran hluta af starfsævi sinni villibráðinni. Meira »

Kalkúnahátíðin mikla

Kalkúnahátíðin mikla
26.11. Þakkargjörðarhátíðin eða Thanksgiving er einn helsti hátíðisdagur Norður-Ameríku og skipar þar svipaðan sess og aðfangadagur hjá okkur. Þetta er helgin sem fjölskyldur sameinast þó svo að fjölskyldumeðlimirnir búi í öðrum ríkjum. Meira »

Trivento-helgi á Argentínu

Trivento-helgi á Argentínu
25.10. Francisco Bragoni, sem er sérstakur “vínsendiherra” argentínska vínhússins Trivento verður hér á landi dagana 3. -6. nóvember.  Af því tilefni verða m.a. Trivento-dagar á veitingahúsinu Argentínu. Meira »

Vinsæll vínkjallari

Vinsæll vínkjallari
17.10. Það er alltaf gaman fyrir vínáhugamenn að skoða góða vínkjallara og ekkert veitingahús á Íslandi státar af eins fjölbreyttum og góðum vínkjallara á Hótel Holt. Þar er að finna mörg af bestu og þekktustu vínum heims, ekki síst hinum frönsku. Fyrir nokkru byrjaði Holtið að opna vínkjallarann fyrir hópa sem þess óska og hefur það notið sívaxandi vinsælda að byrja kvöldið á fordrykk í vínkjallaranum og þá jafnvel algengt að gestir velji sér þar vínið til að hafa síðar með kvöldverðinum. Meira »

Kokteilar á Cafe París

Kokteilar á Cafe París
6.10. Við fengum Orra Pál Vilhjálmsson barþjón á Cafe París til að setja saman nokkra drykki fyrir okkur. Hann notar mikið sænska drykkinn Xanté sem hefur notið mikilla vinsælda á börum í Evrópu en þessi líkjör er blanda úr frönsku koníaki og belgískum eplum. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar